Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Blaðsíða 104
104
Vinsælt sögurit
Vinsælt sögurit.
»Troels-Lund, Dagligt LiviNorden i det
sekstende Aarhundrede«. Fjórða útgáfa. I.—XIV.
bindi. Kmhöfn 1915.
Ef spurt væri, hvaða saga væri vinsælust á Norður-
löndum af öllum hinum miklu söguritum, sem komu út á
öldinni er leið, og á þeim árum, sem liðin eru af 20.
öldinni, getur enginn efi leikið á, hvernig svarið mundi
hljóða. það er hið mikla sögurit, sem að ofan er nefnt,
eftir prófessor, dr. phil. Troels-Lund. Tað kom út í
14 bókum eða bindum á árunum 1879—1901. Síðan
hafa komið út þrjár útgáfur af því, tvær bækur í hverju
bindi, og eru tvær síðustu útgáfurnar prýddar miklum
myndafjölda. Hin síðasta þeirra var prentuð 1914, en
sökum ófriðarins kom hún eigi út fyr en árið eftir. Alls
eru nú prentuð 32000 eintök af þessu mikla söguriti, og
er það einsdæmi á öllum Norðurlöndum. Til samanburð-
ar má geta þess, að ekkert annað vísindalegt og stór-
vaxið sögurit hefur komið út í Danmörku oftar en einu
sinni, síðan Ludvig Holberg ritaði sögu Danaveldis.
Stærstu sögurit Norðmanna hafa eigi heldur komið út
oftar en einu sinni, en í Svíþjóð hafa tvö eða þrjú af
hinum mestu söguritum Svía komið út aftur í endurbættri
útgáfu. Af þessu má ráða, hvílíkum vinsældum saga
Troels-Lunds hefur náð, en sökum þess er líka hægt að
selja hana mjög ódýrt í vandaðri útgáfu.
Sögurit þetta hjet, er það kom út í fyrstu, Saga
Danmerkur og Noregs í lok 16. aldar (»Danmarks og
Norges Historie i Slutningen af det 16. Aarhundrede«).
fað var ætlun höfundarins, er hann tók til starfa, að rita
greinilega »innri og ytri sögu« Danmerkur og Noregs á