Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Page 124
124
Hið íslenska fræðafjelag í Kaupmannahöfn
andi alþýðlegar ritgjörðir, heldur og ritgjörðir, sem geta
gefið tilefni til nytsamra framkvæmda.
Fræðafjelagið gerir sjer far um að vanda allan frá-
gang á bókum sínum, og vonar að það hafi góð áhrif á
íslenska bókagerð.
Til þess að keppa ekki við Bókmentafjelagið, hefur
Fræðafjelagið ekki fast árstillag; en til þess að hinir
tryggu viðskiftamenn þess geti fengið bækur þær, sem
það gefur út, með góðu verði, verða þær, er um stór
rit er að ræða, annaðhvort seldar með miklu lægra verði
áskrifendum, á meðan þær eru að koma út, eins og t. a.
m. Jarðabókin, eða þær verða í fyrstu látnar fyrir hjer
um bil hálfvirði, eins og Ferðabók Thoroddsens og Hand-
bók í íslendinga sögu. Það er því áríðandi fyrir þá menn,
sem vilja fá rit Fræðafjelagsins með mjög vægu verði, að
kaupa þau sem fyrst. Á því spara þeir fje og það greið-
ir fyrir bókasölunni. Pá er lítið er orðið eftir af slíkum
bókum, byrjar bókhlöðuverðið; en engin bók, sem Fræða-
fjelagið gefur út, verður sett niður úr bókhlöðuverði, úr því
að það er komið í gildi. Ef t. a. m. nógu margir menn
kaupa Ársritið nú þegar, fá þeir það ávalt, á meðan það
stígur ekki yfir 9 arkir prentaðar, fyrir 75 aura, svo fram-
arlega sem fjelagið fær þrjá fjórðunga kostnaðarins á Is-
landi. Að öðrum kosti sjer Fræðafjelagið sjer eigi fært að
selja þar Ársritið svo ódýrt.
Fræðafjelagið vill efla greið viðskifti.
Skrifstofa sambandskaupfjelag'sins islenska íKaup-
mannahöfn hefur á fyrsta ári (1915) selt íslenskar landbúnaðarafurðir
fyrir 1120000 kr. í lok ársins byrjaði hún einnig á innkaupum fyrir kaup-
fjelögin, og keypti þá vörur fyrir 110000 kr. Innkaup þessi fara nú mjög
mikið vaxandi, enda munu öll kaupfjelögin brátt fá Sambandsskrifstofuna
til þess að kaupa og selja vörur fyrir sig. Forstöðumaður skrifstofunnar er
Hallgrímur Kristinsson, hinn góðkunni kaupfjelagsstjóri Eyfirð*
inga. — Utanáskrift til skrifstofunnar er: Nybrogade 28, Kobenhavn, K.