Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Blaðsíða 105
Vinsælt sögurit
05
þessum tíma. Hann byrjaði á innri sögunni, og er hann
hafði lokið við hana, var hún orðin svo mikið verk, að
hann hætti við að rita stjórnar og styrjaldar sögu þess-
ara landa. Verkið var líka heild fyrir sig, eins og það
var, þótt það væri eigi um allar greinar menningarsög-
unnar.
Höfundurinn valdi
síðari hluta 16. aldar
af því, að það var
gróandi framfara og
nýjunga tíð á Norður-
löndum. Tímabil þetta
var og mjög viturlega
valið, af því að það
er hinn elsti tími í
sögu þessara þjóða,
sem svo miklar heim-
ildir eru um, að hægt
sje að lýsa greinilega
daglegu lífi manna,
háttum og venjum,
æfikjörum og ástæð-
um allra stjetta; skal
hjer stuttlega greint,
hvernig hann skiftir Prófessor Troels-Lund.
efninu.
I fyrsta bindi er almenn lýsing lands og þjóðar, en
í öðru bindinu lýsir höfundurinn greinilega híbýlum bænda
og borgara, í þriðja herragörðum aðalsmanna og höllum
tiginna manna. Pví næst skýrir hann í fjórða bindinu frá,
hvernig menn gengu til fara, og í fimta bindinu, hvað
menn átu og drukku. I sjötta bindinu lýsir hann daglegu
lífi manna hversdagslega og á helgum og í sjöunda stór-
hátíðum ársins. Hann rekur síðan mannsæfina frá vöggunni