Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Síða 22
22
JÓN ÞÓRARINSSON
1950. Á fyrri árum lék hann einnig á þessi hljóðfæri í veitingahús-
um og á dansleikjum ef svo bar undir. Stundum stjórnaði hann
hljómsveit á sýningum Leikfélags Reykjavíkur í Iðnó, og í þrjú ár
var hann stjórnandi lúðrasveitar í Hafnarfirði. Frá 1939 til 1964
kenndi hann trompetleik og þó einkum tónfræði og hljómfræði í
Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Samhliða öllum þessum fjölþættu störfum stundaði Karl O.
Runólfsson tónsmíðar af mikilli elju allt til efstu stundar og má, að
minnsta kosti miðað við allar aðstæður, teljast mjög afkastamikill
höfundur. Verður hér á eftir gerð nokkur grein fyrir tónsmíða-
starfi hans, og þá einkum stuðst við handritasafn og önnur gögn
úr eigu hans sem afhent hafa verið handritadeild Landsbókasafns
til varðveislu. Landsbókavörður fól þeim sem þetta ritar að raða
þessu efni og skrá það, og fer sú skrá hér á eftir.
Ákvörðun Karls 1925 að helga sig alfarið tónlistarstörfum mun
hafa kostað talsverða innri baráttu, enda var annars vegar um að
ræða örugga og velmetna vinnu í prentiðninni, hins vegar full-
komna óvissu varðandi atvinnu og lífsafkomu á tónlistarsviðinu
meðan hér var varla til nokkurt launað tónlistarstarf nema helst á
dansstöðum og í veitingahúsum. Sú atvinna var stopul og naut
ekki mikillar virðingar. En tónlistin sótti fast á og þörfin fyrir að tjá
sig í tónum var rík. Fullyrt er að Karl hafi eyðilagt eitthvað af fyrstu
tónsmíðahandritum sínum á meðan hann átti í þessari baráttu, og
elstu verk hans sem varðveist hafa svo að kunnugt sé eru samin
eftir að hann haíði náð þrítugsaldri. Meðal elstu verkanna eru
nokkur dans- eða dægurlög, sem vafalaust urðu til í beinum
tengslum við störf hans á dansstöðum og veitingahúsum. Á
árunum 1932—37 komu út a. m. k. 7 valsar og tangóar eftir Karl,
fjölritaðir af Finnboga Jónssyni á Akureyri og voru sum lögin
gefin út oftar en einu sinni, enda mjög vinsæl. Enda þótt hand-
bragð á þessum tónsmíðum sé vandað og fagmannlegt virðist Karl
ekki hafa kært sig um að halda þeim sérstaklega til haga, og í
handritunum og öðrum nótum Karls sem hér hefur verið fjallað
um er ekkert af þessum verkum. En drög að sumum þeirra má
finna í rissbókum tónskáldsins og nokkur eru til fjölrituð í
Landsbókasafni. Skrá um prentuð (og Ijölrituð) verk hans fylgir
tónverkaskránni hér á eftir.
Karl var einn fárra íslenskra tónskálda sem hefur gefið verkum
sínum ópus-tölur að erlendri fyrirmynd. Ekki fengu þó danslögin
ópus-tölur, og fyrstu verk Karls sem birtust á prenti og teljast op. 1