Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Blaðsíða 131
LANDSBÓKASAFNIÐ 1989
131
Filippía Kristjánsdóttir (Hugrún) afhenti vélrit skáldsögu sinn-
ar „Leyndarmálið í Engidal“.
Aslaug Jónsdóttir, tengdadóttir Ingimars Oskarssonar grasa-
fræðings, afhenti bréf til hans á esperanto, ennfremur skrár yfir
íslenzkar liáplöntur í safni hans í íjórum stílabókum.
Sverrir Hólmarsson gaf vélrit skáldsögunnar „Farðu burt
skuggi“ eftir Steinar Sigurjónsson, en honum gaf höfundur.
Axel Kristinsson bókavörður aílicnti ýmis gögn Þorkels Þorkels-
sonar veðurstofustjóra, er verið höíðu í vörzlu Sigríðar dóttur
Þorkels.
Hreggviður Stefánsson byggingatæknifræðingur aflienti bréf
Jóhanns Jónssonar skálds, dags. 19.12.1913, til Stefáns Jakobsson-
ar á Galtafelli, föður gefanda.
Gögn úr búi Bjarna Bjarnasonar læknis og Regínu Þórðardóttur
leikkonu. Edda dóttir þeirra afhenti.
Fiske-safnið íslenzka í bókasafni Cornellháskóla í íþöku í New
York ríki sendi að gjöf ljósrit bréfa íslendinga til Willards Fiskes.
Þórunn Sigurðardóttir, er vinnur í Fiske-safninu, annaðist um
þetta, og fylgir skrá hennar um bréfritarana.
Bjarni Jónsson frá Unnarholti: Islenzkir Hafnarstúdentar. Síð-
ara bindi. Handrit höfundar. Oddur Sigurðsson prentsmiðjustjóri
á Akureyri aílienti, en handritið kom úr dánarbúi Einars Bjarna-
sonar ríkisendurskoðanda, sonar höfundar.
Björn Magnússon prófessor allienti bréfasafn föður síns, sr.
Magnúsar Bjarnasonar á Prestsbakka á Síðu.
Um keypt handrit á árinu er þetta að segja:
123 frumteikningar Tryggva Magnússonar listmálara, er upp-
haílega birtust í alls 7 bókum. Teikningarnar voru keyptar af
Guðmundi Þórhallssyni bókaverði.
Það andlega bænareykelsi þess gáfuríka kennimanns síra Þórð-
ar Bárðarsonar... skr. af Hjörleifi Oddssvni 1824.
Ennfremur sögur, kveðlingar, ljóðmæli eftir ýmsa og skrifað af
ýmsum.
Hvort tveggja keypt af Tómasi Tómassyni skálds Guðmunds-
sonar.
„Sagan af Vilhjálmi sjóð“ með hendi Gísla Konráðssonar sagna-
ritara. Keypt afGuðmundi Axelssyni í Klausturhólum.
Keypt voru af fornbóksala í Hamborg 4 bréf Gunnars Gunnars-
sonar skálds til dr. Zimmermanns í Fredsholm, Birkerod.
„Kynlegir kvistir“. Þættir úr Hjartaásnum með rituðum viðbót-
9