Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Page 139
LANDSBÓKASAFNIÐ 1989
139
Landsbókaverðirnir Kjeld Lund, Nuuk, Finnbogi Guðmundsson, Reykjavík, og
Martin Næs, Tórshavn.
Premur vikum síðar hittist svo á, að forstöðumenn þjóðbóka-
safnanna á Norðurlöndum, Danmörku, Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð, voru staddir í Reykjavík á fundi í framkvæmdanefnd
NORDINFO, og var þá jafnframt sætt færi og efnt til fundar
norrænna ríkisbókavarða 2. október. Voru þar rædd ýmis mál, er
ofarlega voru á baugi, svo sem gjaldtaka fyrir bókasafnaþjónustu,
filmun dagblaða, breyting spjaldskráa í tölvutækt form og margt
íleira.
Loks var svo fundur forstöðumanna evrópskra þjóðbókasafna
haldinn í Madrid 16,—18. október. Þar skýrði hver og einn frá
stöðu mála í sínu landi, en síðan voru tekin fyrir ýmis mál, svo sem
prentskil, tölvuvæðing og skipti á færslum þjóðbókaskráa, virðis-
aukaskattur á bækur o.ll.
Um virðisaukaskatt á bækur var á fundinum samþykkt ályktun,
þar sem segir svo m.a.: „Ohindrað streymi hugsana, hugmynda og
upplýsinga er grundvallaratriði í starfi safna okkar. Þegar því rætt
er um virðisaukaskatt í Evrópu, hlýtur bókin sem lvkill að mennt-
un og rannsóknum að skipa þar sérstöðu. Skattur á bækur er í
raun skattur á þekkingu. Forstöðumenn þjóðbókasafnanna skora
á þjóðir Evrópu að líta á bækur sem „viðkvæman varning“, er mjög
lágur eða helzt enginn virðisaukaskattur verði lagður á.“