Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Page 143
LANDSBÓKASAFNIÐ 1989
143
að Háskólinn féllst á að leggja til 53 milljónir króna til kaupa á
tölvukerfi handa Þjóðarbókhlöðu og til lagningar tölvunets. Við
samþykkt fjárlaga fyrir árið 1990 urðu endanlegar tölur þær, að
úr nýja sjóðnum gengu 67 milljónir króna til Þjóðarbókhlöðu, en
framlag Háskólans var sem fyrr segir 53 milljónir eða fjárráð alls
1990 120 milljónir króna.
Séð varð, að nokkur hluti þess fjár gengi til að ljúka þeim
áföngum, er í gangi voru, 9. og 10. áfanga, og halda yrði í þó
nokkurt fé vegna áframhaldandi hönnunar og vegna Saztekverk-
efnisins svonefnda, svo að framkvæmdir á árinu 1990 yrðu í
algeru lágmarki. Þegar byggingarnefnd mótmælti því, hvernig
komið væri, og knúði á um skil eignarskattsauka áranna 1987—89,
lýsti menntamálaráðherra því yflr, að bókhlöðunni bæri auðvitað
umræddur skattur og honum yrði skilað. Framgangur málsins
veltur á því, að við það verði staðið fremur fyrr en seinna.
Landsbókasafni Islands,
1. desember 1989,
Finnbogi Guðmundsson.