Skinfaxi - 01.02.1937, Page 64
64
SKIXFAXI
•cr
Frá fyrsta sviffluginu í Danmörku, er fór fram síðastl. vor.
Svifflugan heitir Grunau Baby.
með lireyfli, og rénaði þá áhuginn á svifflugi mjög
mikið og gleymdist að lokum að mestu.
Ófriðurinn mikli átti mestan þátt i þessari gleymsku.
En það var hin mikla þörf fyrir liraðfleygar liern-
aðarflugvélár, sem setti hinar hægfara svifflugur í
skugga. Það var ekki fyrr en eftir ófriðinn mikla,
að svifflug komst aftur inn í hugi manna, einkum
þó Þjóðverja.
Versalasamningurinn batt Þjóðverja á höndum og
fótum, séð frá fluglegu sjónarmiði. Þeim var bannað
að smiða flugvélar, sem hægt væri að nota til hern-
aðar, og þar með bannað að smíða hreyfil-flugvélar.
Og nú fyrst rennur upp sannkölluð blómaöld svií'-
flugsins. Þýzkir flugvísindamenn settust nú við að
fullkomna og bæta svifflug-tæknina. Vísindamenn-
irnir athuguðu gaumgæfilega flug sviffuglanna og
gáfu vélunum lögun og léttleik þeirra.
Sviffluginu fleygði áfram með feikna hraða, og nú
12 árum síðar fljúga svifflugur mörg hundruð kíló-
metra í allar áttir, mörg þúsund metra í loft upp,
og halda sér meira en þrjú dægur á lofti. Nú er eng-