Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1960, Side 5

Andvari - 01.10.1960, Side 5
STEFÁN PJETURSSON: JÓN ÞORKELSSON ÞJÓÐSKJALAVÖRÐUR. Þótt öld sé nú liðin, og vel það, síðan Jón Þorkelsson þjóðskjalavörður læddist, og þrjátíu og sex ár síðan hann andaðist, hefur ekki mikið verið skrifað urn þann merkismann. Sannast á því, sem oft áður, að „söguþjóðin" getur verið furðu sein að læra að meta afreksmenn sína að verðleikum. Ef undan eru skilin örstutt æviágrip hans í „íslenzkum æviskrám" eftir Pál Eggert Ólason, „Sögu íslendinga“ eftir Magnús Jónsson og „Salmonsens Leksikon" eftir Finn Jónsson, hefur í raun og veru engin ævisaga hans verið skrifuð hingað til, nema í minningargrein Idannesar Þorsteinssonar um hann í Skírni árið 1924, þá ný- látinn; en að vísu var hún á margan hátt greinargóð, enda var Idannes honum manna kunnugastur. Þetta er ekki þannig að skilja, að ævistarf Jóns Þorkels- sonar hafi legið i þagnargildi þá áratugi, sem liðnir eru frá láti hans; enda væri það hart frásagnar. Páll Sveinsson, frændi hans, skrifaði fróðlegar endurminn- ingar urn hann árið 1934, en að vísu hirtust þær ekki fyrr en í annarri útgáfu af „Vísnakveri Fornólfs" á aldarafmæli Jóns árið 1959; Bjöm K. Þórólfsson skrifaði allítarlega um þátt hans í sögu Þjóðskjalasafns íslands í ritgerð urn íslenzk skjalasöfn í Skírni árið 1953; og í ýmsum ritum bókmenntasögulegs efnis hafa skáldskap hans verið gerð nokkur skil, og þó ef til vill hezt í formálsorðum Þorkels Jóhannessonar fyrir áðurnefndri útgáfu af „Vísnakveri Fornólfs" á aldarafmæli Jóns. En þá má heita upp talið. Skyldu menn þó ætla, að tími væri til kominn, að minnast Jóns Þorkelssonar nokkru ítarlegar, þegar meira en öld er liðin frá fæðingu hans, og þá ekki aðeins sem sérstæðs skálds, heldur og sem sérstæðs fræðimanns og sem þjóðskjalavarðar. Og hvar væri maklegra, að það væri gert, en cinmitt í Andvara, sem frá upphafi hefur haft það sér til ágætis að birta ævisögur látinna merkismanna með þjóð vorri, en láðst hefur fram á þennan dag að minnast Jóns Þorkelssonar, þótt þrjátíu og sex ár séu nú liðin frá láti hans? Ekki svo að skilja, að hægt sé í stuttu erindi eins og því, sem fer hér á eftir og flutt var í ríkisútvarpið á aldarafmæli Jóns, að gera ljölþættu ævistarfi hans nein fullnaðarskil, jafnvel þótt erindið birtist

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.