Andvari - 01.10.1960, Síða 9
ANDVAHI
JÓN ÞORKELSSON ÞJÓÐSKJALAVÖRÐUR
199
varð fóturinn honum aldrei jafngóður eftir það. Varð hann árurn saman að
styðjast við hækju og síðar við staf, enda haltur alla ævi upp frá þessu. Var
hann þá látinn velja um það, hvort hann vildi heldur: læra úrsmíði eða fara
í skóla; og kaus hann síðari kostinn. Naut hann eftir það nokkurrar tilsagnar
hjá séra Páli móðurbróður sínum Pálssyni, austur á Prestbakka á Síðu. En
frá honurn fór hann í latínuskólann í Reykjavík haustið 1876, þá seytján ára,
og settist í fyrsta hekk.
Ekki þótti Jón Þorkelsson stunda námið af neinu kappi fyrstu ár sín í
latínuskólanum. Elann las þó kynstrin öll af hókum, einkum skáldskap, bæði
innlendan og erlendan. Fór þá þegar að bera á því, að hann væri vel skáld-
mæltur; enda varð hann oftar en einu sinni að yrkja „skólaminni" á afmælis-
degi konungs. En lítið þótti sjálfstæðiskempunni síðar á ævinni til þess skáld-
skapar koma; vildi og ógjarnan vera á hann minntur. — I efri bekkjum skólans
sótti hann sig við námið og varð þá ágætur latínumaður, svo að hann lék sér
að því að yrkja á latínu; var hann einn af þeirn fáu, sem þá list kunnu á
landi hér eftir aldamótin. — Allróstusamt var í latínuskólanum síðustu ár Jóns
þar, og kom hann nokkuð þar við sögu. Björn M. Olsen var þá nýlega orðinn
kennari við skólann og hafði umsjón í honum. Þótti ýmsum skólapiltum hann
strangur og umvöndunarsamur og undu stjóm lians illa. Var Jón Þorkelsson
þeirra á meðal, enda þá þegar allmikill fyrir sér, óvæginn, ef því var að skipta,
og ekki á því að láta hlut sinn fyrir neinum. Lenti honum og fleiri skólapiltum
oft allharkalega saman við Björn M. Ólsen, og urðu af hörð átök, jafnvel
handalögmál, í skólanum. Gefur Páll Sveinsson, sem var frændi Jóns og hon-
um síðar handgenginn, í skyn, að skólavist hans hafi eitt sinn verið í nokkurri
hættu af þessu, en Jón Þorkelsson eldri, sem þá var rektor og sá, hvað í nafna
hans hjó, þá tekið svari hans og sagt, að slíkan pilt, svo ótvírætt fræðimanns-
efni, mætti ekki flæma úr skóla. Hjá Jóni Þorkelssyni yngra eimdi lengi eftir
af þessum átökum. Reit hann bækling um þau, „Ástandið og umsjónin í
latínuskólanum", og birti í Kaupmannahöfn árið 1883, eftir að hann var
korninn þangað; og mun seint hafa gróið urn heilt með þeim Birni M. Ólsen
eftir skipti þeirra á skólaámm hans.
Jón Þorkelsson útskrifaðist úr latínuskólanum vorið 1882. Var hann þá
oráðinn í því, hvaða sérnám og Hfsstarf hann skyldi velja sér. Komið hafði til
tals, að hann færi í prestaskólann og yrði aðstoðarprestur föður síns, sem þá
Var farinn fast að cklast. En endirinn varð sá, að Jón sigldi sumarið 1882 og
fók að nema norræn fræði við háskólann í Kaupmannahöfn.
Eins og norræn fræði vom kennd í Kaupmannahöfn á þeim árum, fjöll-
uðu þau tæpast um annað en fomrit íslendinga, þau, sem fest höfðu verið á