Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1960, Side 15

Andvari - 01.10.1960, Side 15
ANDVARI JÓN ÞORKELSSON ÞJÓÐSKJALAVÖRÐUR 205 1892, og flutti háskólafrumvarpið. Stóð barátta Benedikts Sveinssonar fyrir heimastjórn þá sem liæst; og samþykkti þingið 1893, auk háskólafrumvarpsins, einnig stjórnarskrárfrumvarp hans. En ekki varð þingmannsferill Jóns Þorkels- sonar lengri í það sinn. Hann féll við aukakosningar um stjórnarskrármálið á Snæfellsnesi árið eftir. I Iafi það hvarflað að Jóni Þorkelssyni um þetta leyti, sem ekki er ólíklegt, að reyna að ryðja sér til sætis á bekk með stjórnmálanrönnum þjóðarinnar, hefur það að minnsta kosti ekki dregið neitt úr ritstörfum hans, sem sjaldan voru meiri en einmitt á þessum árurn. Auk Fornbréfasafnsins, sem þrjú hindi komu af í Kaupmannahöfn á árunurn 1888—1897, gaf hann út frumsamda „Sögu Jörundar hundadagakóngs" árið 1892, byggða á skjölum, sem áður voru óþekkt, enda í alla staði hina merkustu bók á sínum tíma, „Islenzkar ártíðaskrár" á árunum 1893—1896, sem með skýringum Jóns og ættartölum urðu öndvegisrit á sviði íslenzkra ættfræða, frumsamda „Sögu Magnúsar prúða" og „Sögu Jóns Espólíns lrins fróða“ eftir sjálfan hann, báðar árið 1895, „Ljóðmæli Gríms Thomsens" sama ár og „Vísnakver Páls Vídalíns", með ævisögu Páls eftir Jón Olafsson frá Grunnavík, árið 1897, — allt í Kaupmannahöfn. Þegar litið er á svo umfangsmikil útgáfustörf Jóns Þorkelssonar og ritstörf á þessum árum, væri ekki orð á því gerandi, að hann reit þá einnig tvær minningargreinar um látna vini í Andvara, ef þær væru ekki báðar rneðal þess persónulegasta og bezta, sem eftir hann birtist í óbundnu máli; var önnur þeirra, árið 1894, um Guð- brand frænda hans Vigfússon, — þá látinn fyrir nokkrum árum, — sem hann taldi fáa hafa jafnazt við í íslenzkum fræðum, „og naumast nokkurn nema Árna Magnússon og Jón Sigurðsson"; hin, árið 1898, um Grím Thomsen, „fornan í skapi og fornan í máli“, enda „að allri gerð svo íslenzkan", að Jón mat ekkert skáld samtíðar sinnar til jafns við hann. Sumarið 1898 hafði Jón Þorkelsson dvalið sextán ár í Kaupmannahöfn, en var sem áður embættislaus. Mun hann þá hafa verið farinn að þreytast á þarvist sinni, ettda „allir einstæðari í öðru landi en sínu eigin, . . . sem kvistir slitnir af sinni rót“, eins og hann sagði í grein sinni um Grím Thomsen. En ein- mitt þetta ár bauðst honum staða heima á íslandi, sem var vel við hans hæfi; var það fyrirhuguð skjalavarðarstaða við landsskjalasafnið í Reykjavík, sem þá var í ráði að cndurskipuleggja og opna lil almennings nota. Lét hann ekki bjóða sér slíkt tækifæri tvisvar, enda hvarf hann heim til íslands strax það sumar. Veitti alþingi fé lil hinna fyrirhuguðu híeytinga við skjalasafnið sumarið 1899; og var Jón Þorkelsson skipaður landsskjalavörður í lok þess árs. Landsskjalasafnið hafði að nafninu til verið stofnað með auglýsingu landshöfðingjaembættisins árið 1882; en í raun og veru gerðist þá ekkert annað

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.