Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1960, Page 27

Andvari - 01.10.1960, Page 27
APOSTOLOS DASCALAKIS: VÆRINGJAR Erindi jlutt í Hás\óla íslands 22. aprtl 1960. Það er mér óblandin ánægja, að ég skuli hafa átt þess kost að heimsækja þetta fagra land, sem er svo fjarlægt heimahög- um mínum. Háskóli íslands sýndi mér þá vinsemd aS hjóSa mér hingaS, og för mín er jafnframt aS nokkru leyti þáttur í þeim menningarsamskiptum þjóSa í milli, sem EvrópuráSiS beitir sér fyrir. Lönd vor liggja á öndverSum skautum álfunnar, og margir ySar þekkja Grikki einungis af hinni fornu sögu vorri. Fyrr á tíS mundi för grísks manns til Reykja- víkur hafa veriS talin álíka stórmerki og ferSir Ódysseifs, sem frá cr sagt í Ódys- seifskviðu, eða siglingar sægarpsins Pý- þeasar, þegar hann lagði upp frá strönd- Um MiSjarðarhafs og komst alla leið til mvintýraeyjarinnar Thule, sem í dag nefnist Skandinavía. Á sama hátt mundi Islendingur, sem komizt hefði alla leið til Aþenu, hafa verið lofaður í fornum sögum fyrir afrek sitt, alveg eins og Har- aldur konungur var lofsunginn, þegar hann kom til Konstantínopel og ferðað- ist um allt Grikkland. En svo sem þér niegiS sjá á klæðnaði mínum, ganga Grikkir ekki lengur í skikkjum, né heldur bera þeir hjálma, og ekki vopnast þeir spjótum, bogum og skjöldum, og sjálfir farið þér ekki lengur í hringabrvnjur né takið yður víkingaöxi í hönd. Á ferðum vorum notum vér ekki skip eins og Aga- ntcmnon eða Akkilles á herför sinni gegn i rójuborg, og ekki heldur þríæringa eins í sjóorustunni við Salamis, og þér, að yðar leyti, sigliS ekki lengur langskipum ’ncð 32 árum og háum siglutrjám, drek- um víkinganna og sækonunganna. Á vor- um dögum klæðumst vér og þér snms konar fötum, nema þegar saman fer hita- hylgja í Grikklandi og kuldahret á Islandi. Nú förum vér ferða vorra um höfin í þægilegum skipum eða fljúgum loftin í þotum. Það er sama hvaða mál vér töl- um og hvar í Evrópu vér búum, allir erum vér þegnar í hinu mikla evrópska samfélagi. Auk þess lifum vér, hugsum og finnum til sem Evrópumenn. Lönd vor, sem naumast vissu hvort af öðru fram að deginum í gær, verða aS tengj- ast sterkari böndum og kynnast betur. Á þann hátt einn lærist oss að skynja það sem sameiginlegt er öllum EvrópuþjóS- um. Þótt þær lieyi friðsamlega samkeppni sín í milli, eru þær undir hið sama seldar og hver annarri tengdar og háSar. Þó er eigi svo að skilja, að lönd vor hafi ætíð veriS svo fjarskyld að hugsun og luigniyndum sem ætla mætti af fjar- lægðinni þeirra í milli. Ef ég man rétt, hélduð þér fyrir fáum árum hátíðlegt 1000 ára afmæli þings yðar, sem var fyrsta þing í Evrópu og undanfari þjóð- þinganna í lýðræðislöndum heimsins á vorum dögum. En í fyrndinni voru þing miSstöðvar alls stjórnmálalífs í mínu landi. Þar þróuðust hugmyndirnar um pcrsónulegt frelsi, jöfnum höndum í kenningum hcimspekinga og stjórnar- störfum valdhafanna, og hornsteinn lýð- ræðisins var lagður. Þannig fékk Grikk- land hið forna oss í hendur þann arf, sem dýrastur er í heimi nútímans. ísland lét stjórnast af þessum anda lýðræðislegs

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.