Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Síða 33

Andvari - 01.10.1960, Síða 33
ANDVARI VÆRINGJAR 223 þetta et’ni, og mér þykir lcitt, að ég hef ekki tíma til að fjölyrða um þær nú. í eitt skipti fylgdu þeir sjálfum keisaranum á herferðum hans, og foringjar þeirra tóku fyrirskipanir beint frá honum, þar sem þeir voru hluti af hinu keisaralega fylgdarliði. í annað sinn er sjálfstæð Væringjaherdeild send til einhvers staðar til hernaðaraðgerða, og Væringjaforing- inn er sjálfur fyrir henni í nafni keis- arans. Mörgum sinnum eru þeir nefndir sem hluti af herdeild undir stjórn frægra býzanzkra herforingja. Að því er býz- anzkir sagnaritarar herma, má finna Vær- ingja inni í miðri Asíu, á bökkum Eufrats í viðureign við Persa, í fjöllum Asíu í bardögum við Araba, á bökkum Dónár eða Aimos-fjöllum gegn Búlgörum og Slöfurn, í Suður-ftalíu til þess að frelsa kristna menn úr höndurn Múhammeðs- manna. Síðar finnum við þá aftur í Grikk- landi, þar sem þeir standa gegn innrás- um fjarskyldra frænda sinna, Normanna frá Frakklandi, sem stofnað höfðu ríki á Sikiley. Oft er sagt að gripið hafi verið til Væringja, þegar allt í einu þurfti að senda hermenn til að mæta skyndiárás eða kveða niður uppreisn eða sigra ein- hvern herforingja, sem vildi gera sig að keisara. Alltaf er talað um þá sem fót- gönguliða, aldrei sem riddaralið. Eigi að síður bera þeir af öllum um hernaðar- tækni og ráðast að óvinunum í þéttum fylkingum sem órjúfandi veggur. í atlög- unni reka þeir upp heróp og slá öxum sínum saman með miklum hávaða. Þeir eru hraustir og geiglausir og vilja heldur falla á vígvelli en hopa. Óvinir keisarans hræðast þá mjög og verða oft gripnir ofboði, þegar þeir sjá þessa norrænu risa. Alls staðar halda þeir velli og korna aftur til „Tsarigrad", keisaraborgarinnar Konst- antínópel, sigurreifir og með miklu her- fangi. Tekið er á móti þeim með mikl- um heiðri, foringjarnir fá háar stöður, gull eins og hver vill og stórkostlegar veizlur. Allt verður þetta til þess að glæða áhuga þeirra á nýjum herförum. Að sjálfsögðu fóru hinar Ijóshærðu nor- rænu hetjur ekki á mis við ástir ungra kvenna í Býzanz, en aldrei varð það til þess að slæva stranga lifnaðarhætti þeirra og hermannlegan heiður á miðaldalega riddaravísu. Sagnaritarinn Kedrinos segir frá Væringja nokkrum, sem reyndi að nauðga konu í herferð til Þrakíu. Idenni tókst að ná öxi hans og drepa hann. Þegar hinir Væringjarnir komust að þessu, skutu þeir á fundi, krýndu konu þessa og gerðu sem mestan heiður hennar, gáfu henni allar eigur mannsins, en létu hann sjálfan ógrafinn öðrum til viðvörunar. Margir Væringjar voru einnig á býz- anzka flotanum. Þeir sem börðust á landi voru kallaðir „spjótberar", en þeir sem á sjónum voru, „sæhermenn". En oft var enginn greinarmunur gerður og þeir voru notaðir sitt á hvað, á sjó eða landi, eftir því sem þörf krafði. Slíkt var ekki nema eðlilegt í augum hinna norrænu hermanna, sem vanir voru sjóorustum í norrænum höfum og bardögum á megin- landi Vestur-Evrópu og gengu að hvoru tveggja með sama vígahug og leikni. I þjónustu keisarans reyndust þeir ágætir sjóhermenn, og hann beitti Væringjum til allra mikilvægra hernaðaraðgerða á Miðjarðarhafi. Þeir tóku þátt í herferð- unurn til þess að frelsa eyna Krít úr höndum Araba, og þeir stökktu Nor- mönnum brott frá Sikiley og öðrum vest- rænum innrásarmönnum úr grískum löndum. En Væringjarnir urðu fyrst og fremst frægir í sögu Miklagarðs sem keisaraleg- ur lífvörður, úrvalssveit hermanna í per- sónulegri fylgd keisarans. Það liggur í augum uppi að yngstu, hraustustu, glæsilegustu og tiginmannlegustu menn- irnir voru valdir í lífvörð keisarans. Allir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.