Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Síða 35

Andvari - 01.10.1960, Síða 35
andvaiii VÆRINGJAR 225 keisarans og hafa veg og vanda af sam- skiptum Væringja við ríkisvaldið. Fvrir nokkrum árum fannst í Konstantínópel blýinnsigli með svofelldri áletrun: „Inn- sigli hins háæruverðuga stórtúlks Vær- ingja, Mikaels". Há embætti, margvíslegar virðingar, auðlegð og lystisemdir Konstantínópel- borgar, sem var París þeirra tíma, megn- aði ekki að svæfa þrá Væringja eftir bin- um fjarlægu heimkynnum sínum og óskir þeirra um að mega hverfa heim. Til marks urn þetta er meðal annars það, að sagnaritarar segja frá mörgum ástarævin- týrum Væringja með býzönzkum konum, en ekki giftingum. Líklegt er, að keisar- inn hafi lagt bann við slíku, af ótta við að Væringjar færu þá að eignast bú og börn og misstu við það hernaðarhugann og gerðust ófúsari til að sendast út um alla Evrópu til að berjast. Ef til vill vildu þeir sjálfir ekki kvænast, annaðhvort af því að þeir áttu fjölskyldu heima eða ætluðu sér að hverfa heim og vissu, að grískar konur myndu trauðar til að fylgja þeim norður í fjarskann. Víst er að fjöldi Væringja hvarf úr þjónustu keisarans, þegar þeir voru orðnir vel loðnir um lófana. Þeir héldu á brott og létu berast yfir meginland Evrópu og komust loks til heimkynna sinna á Norðurlöndum. Þar sögðu þeir sögur um hetjudáðir sínar, og ómurinn af þeim frásögnum heyrist 1 fornum norrænum sögum. En auðlegð þeirra og ævintýralegar sögur um stríð og ástir freistuðu nýrra ungra Skandínava til að leita til hinnar sagnfrægu „Tsari- grad“, Miklagarðs sem þeir svo nefndu, borgar keisarans með furðulegum höllum og óþrjótandi gulli. Þannig héldu ungir nienn frá Norðurlöndum áfram að streyma inn í Væringjahersveit keisarans, svo að stofninn hélzt við, þótt margir sneru heim. Það er merkilegt, að slíkt skyldi geta átt sér stað öldum saman. Norðurlandamenn reyndust óbrigðul uppspretta trausts og halds fyrir býzanzka heimsveldið, enda var það þeim aftur á móti ótæmandi brunnur auðs og ævin- týra. Vér skulum nú aftur snúa að hetju þeirri, sem nefnd var að upphafi máls, Idaraldi harðráða, norska konungssynin- um, sem síðar varð konungur sjálfur. Hér skal ekki fjölyrt um það, hvað þessi Haraldur var eða hvað hann gerði á Norðurlöndum. Ég læt nægja að skýra frá því, sem við viturn um hann í Grikk- landi, um ævi hans og afrek í fjarlægum löndum austursins. Sá fróðleikur er að mestu leyti úr norrænum heimildum. Kunnugt er úr fornum sögum, að þessi hetja, Elaraldur harðráði, hinn hraustasti meðal hraustra, sonur Sigurðar sýr, hélt í austurveg eftir margar frækilegar orust- ur árið 1030, eftir fall Ólafs konungs á Stiklarstöðum, þar sem Idaraldur sjálfur særðist. I austurvegi leitað hann hælis hjá norrænum ættingjum sínum í fursta- dæmum Rússlands. Þar lendir hann að sjálfsögðu í ástarævintýrum með rússn- eskum konungsdætrum, en heldur síðan alfaraleið norrænna stríðsmanna suður á bóginn og til Býzanz og ræðst í þjónustu keisarans. Fyrir fræknleika sakir og ætt- göfgi eru honum von bráðar boðnar miklar virðingar og hann verður foringi Væringjasveitarinnar. Orð fór af afreks- verkum hans í öllu heimsveldinu, í Asíu, Afríku, og sérstaklega á Sikiley, þar sem hann bar sigurorð af múhammeðskum Serkjum í átján orustum. Síðar fór hann pílagrímsferð til Jórsala, en kom loks aftur til Miklagarðs og lagði sig eftir ást- um hinnar rosknu keisaradrottningar Zóe. Idins vegar varð hin fagra unga frænka drottningarinnar María ástfangin af hon- urn og baðst þess árangurslaust að mega giftast honum. Drottningin verður mjög reið og lætur hneppa Harald í fangelsi, 15
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.