Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Síða 44

Andvari - 01.10.1960, Síða 44
234 WILLIAM IIEINESEN ANDVAKI hafa hraðan á, hlífðarklæddir menn börSust út í myrkriS meS smíSatól, Ijósker og kaSla. Strange stýrimaður fór fyrir þeim, grimmúSugur á svip eins og villi- maSur. í sæmilegu veSri hefSi þessi viðgerS verið smámunir einir, en nú varð hún eins og löng og tvísýn orusta við jötna; tveir af áhöfninni mundu hafa farið í sjóinn, ef stýrimaður hefði ekki verið svo forsjáll aS láta binda þá við vinduna með sterkum köðlum. Þegar Strange kom upp í brúna eftir frækilegan sigur, stóð skipstjórinn þar og hrosti ánægjulega í kampinn eins og hans var vandi. — Að hverjum skollanum er skipstjórinn að hlæja, spurði stýrimaðurinn vonzkulega. — Er ég að hlæja? sagði Thygesen og skellihló. Stýrimaður skundaði burt og tautaði orð eins og bandvitlaus og ábyrgðarlaus. — Jú, það er allt í lagi með yður, Strange, sagði skipstjóri og virtist berjast við nýtt hláturs- og linerrakast. Niðri í farþegadeildinni ríkti nú orðið fullkomið neyðarástand; margir farþeganna höfðu ekki lengur þrek til að halda sér í bríkur og stokka, heldur köstuðust um káetugólfið og fengu högg og kúlur og hrufluðust til blóðs eða féllu í öngvit. Konur og börn voru meS háahljóðum af hræðslu. Og það var ekki ástæðulaust. Brytinn, þjónninn og skipsdrengirnir urðu að skerast í leik- inn og hjálpa jómfrúnum, sem sáu ekki út úr annríkinu. Og þegar verst gegndi fékk María þrautir aftur. Frú Davidsen var við öllu búin og lét hana fara í rúrnið; en stúlkan var þrákelkin og dreif sig fljótlega á fætur aftur. Uppi í reyksalnum klofuðust salhetjurnar fjórar á stólum sínum og létu miðnæturstundirnar líða. Vindlareykurinn hnyklaðist milli staðfastra ljóspera í loftinu, ýmist kyrr eða hann hringsólaði makindalega, eins og honum kæmu ólætin í skipinu ekkert við. Klukkan á þilinu var stönzuð, tíminn hafði numið staðar og komst ekki úr sporunum; geigvænleg stundleysa ríkti í auðum upp- lýstum salnum, en geyjandi vargar ragnarökkurs yggldu sig og hrinu ofboðs- lega í hafmyrkrinu fyrir utan. Balthazar var hættur að syngja sálmana; hann sat kyrr og naut þess að reykja vindil sinn. Idann sagði, að nú væri röðin komin að skáldinu að skemmta samkvæminu. Það fannst lækninum líka, og það var ekki eftir Einari Bene- diktssyni að bregðast góðum bókmenntaþyrstum löndum sínum. Hann tæmdi glasið, lokaði augunum svo sem til að rifja upp efnið og hóf síðan með mildri hrærðri röddu að flytja hinn mikla óð sinn til útsævarins, hins almáttka, sem er vagga hfsins og gröf. oo D D
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.