Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Síða 46

Andvari - 01.10.1960, Síða 46
236 WILLIAM HEINESEN ANDVAlll — Þá dönsum við! sagði Einar Benediktsson. Kveikið ljósið! Balthazar nrjakaði sér varlega ofan af stólnuin, en náði ekki fótfestu og valt ósjálfbjarga eftir gólfinu. Læknirinn reyndi líka að komast að kveikjaran- um, en fékk sömu útreið. Hlátrar og formælingar þeirra beggja kváðu við í myrkrinu. — Liggið þið kyrrir og haldið ykkur fast! sagði skáldið í viðvörunarróm. Hann bafði lagzt flatur á gólfið og reyndi með lagi að rnjaka sér á maganum að kveikjaranum, en hann rann af stað eins og hinir og lenti undir borði í hinum enda salarins. En nú var Gregersen vélstjóri byrjaður á kvæði sínu og sló taktinn með því að berja skóhælunum í stólfæturna. Rciddin var lítil en ábrifasterk, og hann kvað hið gamla kátlega kvæði Geiplur um keisara Karlamagnús og jafn- ingja hans tólf, sem kornnir eru að niðurlotum í Garðaríki fyrir heiðingja- kónginum Húgon og töfrabrögðum bans, en fyrir sakir hreystimannlegrar fram- göngu sinnar og fulltingis æðri máttarvalda sigrast þeir á tröllskapnum: Villum þeytir gullstöng gegnurn fimmtán álna þykkan múrvegg, Engelbret kafar niður í ker með sjóðandi blýi og kemur óskaddur upp aftur, Ólafur jarl fremur losta sinn hundrað sinnum í meyjaskemmunni, Róland blæs með horni sínu hvert hár af höfði Húgons kóngs í einni lotu, og Túrjiin erkibiskup veitir að lokum fossandi elfi inn yl’ir riki beiðingja, og því syndaflóði hefðu þeir orðið að bráð, ef hinn háeðallyndi keisari Karlamagnús hefði ekki l’engið vatnsflauminn heftan með því að ákalla miskunnsaman guð kristinna manna . . . íslendingarnir föl 1 nu tóku undir þar sem þeir lágu í myrkrinu, sungu hið bljómmikla viðlag og héldu sér fast í borðfætur og stóla. Ríða þeir út af Frankalandi með dýra mey í söðli — blás í hornið Ólivant í Rúnsival. Skömmu eftir miðnætti tók storminn að lægja og gekk til norðanáttar; stjörnur kviknuðu yfir flakandi haffleti, þar sem langir löðurdreglar lágu eins og silfurglitrandi festar yfir súgandi undiröldu. Út úr káetu frú Davidsen heyrðust niðurbæld bljóð og runnu saman við kvalastunur hinna sjóveiku. Jómfrúin þrýsti hendur ungu stúlkunnar. — Þú skalt ekki vera hrædd, Maria, sagði hún mildilega. Ég er hjá þér, og liér er líka læknir um borð. — Ég er ekki hrædd, hvíslaði stúlkan og bar hönd frú Davidsen upp að þurrum vörum sínum. Hún lauk upp augunum og sendi jómfrúnni dauft bros:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.