Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1960, Side 53

Andvari - 01.10.1960, Side 53
ANDVARI JÓMFRÚFÆÐINGIN 243 Það var jóladagsmorgunn og friður á jörðu. Hann vildi sættast við Jósef og láta þennan dag ekki sjá reiði sína. Jú, matsveinninn var á fótum. Hann sat í káetu sinni einn og yfirgefinn, °g horfði döprum augum fram fyrir sig með lokaða sálmabók í kjöltunni. A borðinu fyrir framan hann voru þrjú kerti með logandi ljósum, sem blöktu hátíðlega undir mynd af gamalli armæðulegri konu. Það var víst móðir Jósefs. — Eg er kominn til að biðja þig að fyrirgefa mér hvað ég var æstur, sagði stýrimaður og tyllti sér á rúmstokk matsveinsins, fullur af vinsemd. — Það er ófyrirgefanlegt! sagði Jósef án þess að líta á hann. — Hvaða vitleysa, sagði stýrimaður og vildi gera gott úr öllu. Getum við ekki sem kristnir bræður . . . ? — Nei! sagði matsveinninn þverlega. Því að þú ert farísei, og ég er toll- heimtumaður. Tollheimtumaðurinn og faríseinn eru ekki bræður. Ég er iðr- andi syndari, og þú crt kölkuð gröf. Þú getur farið til — fyrirgeficj — með þetta raus um kristna bræður! Stýrimaður yppti öxlum og stóð upp. — Jæja, eins og þú vilt, Jósef, sagði hann. Eins og þú vilt. Vertu sæll og gleðileg jól! Matsveinninn svaraði ekki. Hann hafði lagt sálmabókina frá sér og fól andlitið í höndum sér. Niðri í jómfrúbúrinu var hinn ofsalegi barnsgrátur þagnaður. Jómfrúin hafði laugað og sveipað litla drenginn og lagt hann að brjósti móður sinnar. Hún hellti eau-de-cologne á undirskál og kveikti í; það hreinsaði loftið. — Jóhann! kallaði hún út á ganginn. Róbert! Ætlið þið ekki að koma og óska okkur til hamingju og gleðilegra jóla? — Bezt að forða sér! tautaði Róbert og hvarf upp stigaganginn. Jóhann var á hælum honum, en í miðjum stiganum nam hann staðar og hugsaði sig um. Honum fannst það allt í einu dálítið hart fyrir frú Davidsen að vera að kalla þetta árangurslaust. Frú Davidsen var tyrta, en það var von hún væri það, ef ekki laug almannarómur, að elzti sonur hennar væri vandræða- strákur og hefði verið í steininum. Hann læddist inn í káetu jómfrúarinnar og stanzaði feimnislegur innan við dyrnar. Hér var kynleg framandi og sæt lykt. Honum datt í hug „gull, reykelsi og mirra skær“, eins og í jólasálminum stendur. Móðirin unga tók ekki eftir honum. Hún lá og horfði fram fyrir sig með björtu, fjarrænu augnaráði. Rauðbleikt hár hennar var greitt þétt að vöng- unum. Hún var litlaus í framan — eins og andi. Hann liugsaði til þess með óhug, að hún hefði verið dauða nær. Hún var enn ekki alveg komin til þessa

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.