Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Blaðsíða 64

Andvari - 01.10.1960, Blaðsíða 64
254 1!A(.,\AR jÓIIANNJiSSON ANDVARl ist ég aftur í hnakkinn, og riðum við löturhægt heim að Hólum. Dreif A. mig þegar niður í rúm, enda var ég þá kom- inn með hita. Var A. umhyggjusamur cins og bezti bróðir, útvegaði mér aspirín- skammta. Svaf ég fast í tvo tíma og spratt þá upp alheill, og varð A. því feginn mjög. — Af þessum atburði stafar við- vörun hans í bókinni um að drekka ekki kaffi ofan á skyr. Síðasta daginn, sem við vorum á Idól- um, barst sú fregn, að Herbert Göring væri á leiðinni sunnan Kjöl og bæðist gistingar. Göring þessi var bróðir naz- istaforingjans feita, Idermanns Görings, og var ráðuneytisstjóri í Berlín, eða eitt- hvað þess háttar. Kom hann ríðandi að sunnan með fjölmcnnu föruneyti. Séra Knútur Arngrímsson var túlkur hans og leiðsögumaður, en auk hans munu hafa verið einn eða fleiri íslenzkir fylgdar- menn og hestasveinar. Auden varð ókvæða við þessa gesta- frétt, en hann var mikill óvinur nazista eins og fyrr segir. Þótti honum það lítt bærileg tilhugsun að þurfa að gista heila nótt í sama húsi og slíkur maður. Valdi hann nazistum hin hæðilegustu orð og geisaði mjög. Var honum jafnvel ofarlega í huga að fara frá Hólum þá þegar, en átti ekki kost á neinni ferð. Lét hann nokkuð sefast, en ræddi mjög um það hvaða svívirðu hann gæti gert Göring. Er sumt af því, sem honum hugkvæmd- ist þá, engan veginn ])renthæft í jafn- virðulegu tímariti sem þessu! Undir kvöldið reið Göring í hlað á Hólum með fríðu föruneyti, hófadyn og jóreyk; var för hans hin hermannligasta, og glampaði kvöldsólin á þýzku Jeður- stígvélin. Þýzkir slógu þegar tjöldum úti í túnjaðri og kom því ekki til þess, að Auden þyrfti að búa undir sama þald og Göring. Morguninn eftir snæddu allir gestirnir árbít inni í stofu. Voru þeir þar mestir virðingamenn, Auden og Göring, og sátu saman. Ræddust þeir við af miklu fjöri, bæði á ensku og þýzku, og sýndu livor öðrum liæversku að hofmanna hætti og Jrvöddust síðan með lmeigingum og hæla- samslætti. Fór því svo giftusamlega, að lieimstyrjöldin hófst ekki á Hólum í ldjaltadal þennan sólbjarta sumarmorgun. Eftir nýtt lningsól með mjólkurbíln- um komurn við aftur á Sauðárkrók. Jónas læknir liafði þá útvegað okkur dvöl og gistingu á Ulfsstöðum í Blönduhlíð að Jóhanns bónda. Höfðum við þar góða vist. Enn fórum við í reiðtúr og fengum að þessu sinni skagfirzka fjörhesta. Réð ég ekkcrt við minn og Auden enn síður við sinn, en ég átti fullt í fangi með að stýra gæðingnum og gat engar gætur gefið skáldinu. Munaði minnstu að fák- arnir kæmu mannlausir í lilaðið á Mikla- bæ eins og licstur séra Odds forðum, en þar námurn við staðar, og veit ég ekki, hvort A. datt af baki á leiðinni, en lík- legt þykir mér það. Næsti áfangastaður var Akureyri, og leizt Auden stórum betur á þann stað en Reykjavík. Hann hreifst strax af þeim viðtökum, sem við fengum þar kvöldið, sem við komum þangað. Ég átti fjölda vina og skólasystkina á Akureyri og var strax umkringdur glaðværum og fagn- andi lrópi, er ég steig út úr vagninum á torginu, Segir Auden (í L. f. I.), að gaman væri að fá slíkar viðtökur „at Victoria or Paddington'1. Enda naut hann sjálfur góðs af. Mér bafði ekki tekizt að útvega gistingu á Akureyri, þrátt fyrir símtöl. Ferðamannastraumur var mikill nyrðra, og gistiliúsin fleytifull. Nú vildi okkur það til, að ég hitti fljótlega skóla- bróður minn og vin, Jörund Pálsson fra Hrísey, sem stundaði um þessar mundir myndlistarnám í Kaupmannahöfn á vetr- um, en vann á Akureyri á sumrum. Hann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.