Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Síða 72

Andvari - 01.10.1960, Síða 72
262 JÓN HELGASON ANDVAKI Neðra-Nesi og bað Herþrúði fyrir þau skilaboð til Einars, að hann yrði heima við, þegar liði á daginn, svo að þeir fé- lagar gætu naustað bátinn. Einar kom heim, áður en dagur var allur, en þegar leið að kvöldi, án þess að Árni kæmi, fór honum að leiðast biðin. Flaug honum þá í hug, að Árni biði hans niðri við sjó, og lagði því af stað þangað. Var þá enn dagsbrún í vestri. Talsvert var þó tekið að skyggja, þegar Einar kom niður að sjónum, og sá hann Árna þar hvergi. Einar tók að rölta í kringum hátinn og leita þar að hlunnum, sem orðið höfðu þar eftir, þegar þeir settu hann fram. Fann hann brátt hlunnana og auk þeirra ofurlítið fjalarbrot úr skipi með nöglum í. Við þetta flaug bónda í hug, hvort fleira kynni að hafa borið upp, því að jafnan þótti fengur, ef citthvað fannst á fjöru. Rölti hann út með sjón- um, en varð einskis vísari. Síðan hallaði hann sér út við bátinn og beið komu Árna. Þarna lá hann á að gizka mat- langan tíma, en stóð þá upp og sneri heim á leið. Ekki hafði hann verið lengi heima, er Árni kom loks innan frá Ketu. Spurði hann Einar, hvort hann hefði farið niður í vörina. Einar játaði því og sagði bát- inn í sjó kominn. Varð það úr, að þcir riðu báðir til sjávar, og varð Einar nokkuð seinni í förum en Árni, er reið niður lág eina eða dokk, lítið eitt sunnan við hina venjulegu sjávargötu. Hittust þeir við bátinn og settu hann, svo sem þeir höfðu ætlað. Þegar þeir höfðu þetta starfað, vék Einar sér að Árna og spurði, hvort hann hefði fundið nokkur venjuhrigði á hesti sínum á leiðinni til sjávar. „Heldur en ekki var það“, svaraði Árni. „Hvers slags þótti þér það vera?“ spurði Einar. „Færleikurinn fældist undir mér, svo ég var því nær af baki fallinn", sagði Árni. Einar spurði, hvar það hefði verið. „Hérna uppi í dokkinni", sagði Árni. „Það var þá á sama stað og ég varð var við venjubrigði á þeim færleik, sem ég reið. Ég reið hóftölt, en allan gang tók af færleik mínum, svo staðnr nam“, mælti Einar. Furðuðu þeir sig mjög á því, hvað fælt hefði undir þeim hestana í myrkr- inu, og virðist ekki laust við, að geigur hafi verið í þeim. Sagði Einar þau dæmi gefast, að vofur væru á ferð um nætur- tíma. Samt herti hann upp hugann og spurði Árna, hvort hann vildi grennsl- ast eftir því, hverju þetta sætti. „Ég er góður með“, sagði Árni. Einari gazt miður vel að því, ef hann ætti að hafa forystuna. „Það get ég ekki“, sagði hann — „þar hef ég ekki hugdirfð til. Það væri nær og eiginlegra að skyggnast eftir því á björtum degi.“ Árni féllst á það. „Það vil ég þá gera“, sagði hann. Síðan riðu þeir upp úr fjörunni, en forðuðust nú lágina, er þeir höfðu áður lagt leið sína um, því að Einar kvaðst ekki voga að ríða hana sökum hugleysis síns. Paufuðust þeir heim á leið í myrkr- inu og héldu enn um hríð áfram orða- skiptum sínum um þau undur, er fyrir þá hafði borið. Loks datt upp úr Einari, að hann hefði fundið brotna fjöl úr skipi á fjörunni um kvöldið, en í næstu andra gat hann sér þess til, að hestur, sem hann hafði teymt eða vikið til sjávar, kynni að hafa orðið afvelta í lautinni. Samt héldu þeir áfram heim og felldu þetta tal sitt, og ekki var frekar um það rætt, að þeir skyggndust um á sjávar- hakkanum daginn eftir. Sú varð líka raunin á, að þeir fóru
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.