Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1960, Side 75

Andvari - 01.10.1960, Side 75
ANDVARI SKIPBROT VIÐ HÚNSNES 265 kvæmdist Einari líka aS lána honum hettu sína og vettlinga, því að hann var berhöfSaSur og berhentur. Þessu næst tóku bændurnir að spyrja manninn, hvort hann vildi, aS þeir létu hann á reiðingshestinn. En nú var hann ekki lengur jafnmálhress og áður, því að þeir gátu ekki greint, þrátt fyrir eftir- grennslanir sínar, hvort hann sagði já eða nei. En þeir tóku þá rögg á sig og leystu vandann með því að snara mann- inum klofvega upp á reiðinginn fyrir aftan klakkana, og ístöð gerðu þeir hon- um úr reipi. Og með því að hvorugur þeirra vildi flvtja hann heim til sín, varð það að ráði, að þeir færu með hann inn á bæi, þótt það væri alllöng og harla ógreiÖfær leiö. Skiptust þeir á um að teyma hestinn og styðja manninn, og er ekki ósennilegt, að þeir hafi ætlað inn að Ketu, þótt förin endaði á Mallandi, því að í Ketu bjuggu tveir lireppstjórar sveitarinnar, Jón Jónsson og Guðmundur Eiríksson. Þegar þeir höfðu farið þannig alllengi, spurði maðurinn á reiðingnum allt i einu, h\ort þeir gætu ekki gefið sér eitthvaÖ að drekka. En þá var hreytan úr Neðra- Neskúnni búin, svo að þeir gátu ekki dreypt á hann. Síðan var lcngi haldið áfrarn, unz mað- urinn tók aftur til máls. Nú spurði hann, hvað langt væri til byggða. Þeir sögðu honum, að það væri langt, því að þeir væru komnir í MallandsskarS. V Það var hyggja þeirra Nesmanna, að þeir hefðu komið skipbrotsmanninum úr Grímsey lifandi að Mallandi, því að þeir þóttust heyra til hans stunur. En svo sagði Einar í Neðra-Nesi síðar, að hann hefði haldið, að yfir hann hefði liðið, þegar þeir tóku hann af baki þar á hlað- inu. Var þar stumraÖ yfir manninum um hrið, og með því að betur var búið að mjólk á Mallandi en NeÖra-Nesi, var enn á ný reynt að dreypa á hann. Sagðist Einar, sem að því starfaði, ekki vita het- ur en mjólkin hefði runnið niður í hann. Aðrir hermdu þó, að hann hefði sagt þar á hlaðinu, að hann kæmi mjólkinni ekki í hann, ,,því hann væri kominn guðs í frið.“ Loks varð það að ráði að bera skip- brotsmanninn í skemmu, og þar var mað- ur fenginn til þess að færa hann úr skinn- stakk, koti og buxum og rannsaka, hvort lífsmark fyndist með honum, því að þá var hætt að heyrast til hans. Þótti tví- sýna á, hvort heldur hann var dauður eða í öngviti. En svo fór, að ekkert merki þess sást, að hann væri lengur lífs, svo að hann var lagður til í skemmunni. Ærin fyrirhöfn Nesmanna hafði komið fyrir ekki. Grímseyingurinn, sem legið hafði þrjú dægur í högum þeirra, þjak- aður og stórslasaður, og loks verið fluttur á reiðingi í stórviðri og kulda um dag- setur klukkustundar lestargang, var úi- skurðaður örendur. Það hefur hann kann- ski líka verið. Minna volk hefur orðið mörgum manninum að aldurtila. VI Mallandsbændum þótti sendingin ekki nema miðlungi góð. Þeir vildu losna sem skjótast við lík Grimseyingsins. Fyrir sólaruppkomu á fimmtudagsmorguninn var barið að dyrum í Ketu, þar sem hrepp- stjórarnir bjuggu, og var þar korninn Bjarni Högnason á Mallandi. Erindi hans var að segja Ketumönnum tíðindin og biðja J>á aðstoðar við að færa líkið til kirkju. Hreppstjórarnir brugðust vel við þess- um tilmælum. Var þegar hafizt handa um líkflutninginn. Kvenfólkið á Mal- landi hafði sýnt hinum dána manni þann sóma að breiða klút yfir ástjónu hans,

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.