Andvari - 01.10.1960, Page 78
FRIÐRIK ÓLAFSSON:
Einn kemur öðrum meiri.
Eins og mönnum cr í fersku minni
tókst Lettlendingnum Michael Tal á
þessu ári að hrífa heimsmeistaratitilinn í
skák úr höndum Rússans Michaels Bot-
vinniks, sigraði hann með töluverðum
yfirburðum í einvígi, sem lyktaði 12V2:8V2.
Ekki hefur Botvinnik látið hugfallast við
við þessar ófarir, heldur þegar tilkynnt,
að hann muni neyta enduráskorunarréttar
síns, og fer seinni þáttur þessa hildarleiks
að öllu forfallalausu fram i Moskvu í
marzmánuði á næsta ári. Fæst þá úr því
skorið, hvort hinum unga nýkrýnda kóngi
skákheimsins tekst að halda sínum hlut
til streitu eða Botvinnik að endurheimta
titil sinn, og fer vart milh' mála, að þetta
seinna einvígi verður mun skemmtilegra
og tvísýnna en hið fyrra. Botvinnik er
ekki í þeirri aðstöðu nú, sem hann var
áður, hann hefur allt að vinna og engu
að tapa, og má Tal ekki slaka mikið á,
ef einvígið á að ganga honum að ósk-
um. Þess er skemmst að minnast, að Bot-
vinnik varð að sjá af titlinum í hendur
landa sínum, Vasily Smyslov, um eins
árs skeið (1957), en tókst síðan að endur-
heimta hann, öllum til mikillar furðu.
En Tal gengur þcss áreiðanlega ekki dul-
inn, hverja raun hann á fyrir höndum,
og af þeim orsökum og öðrum hljóta
möguleikar hans að teljast meiri. Ætla
ég hér á eftir að gera nánari grein fyrir
þcirri skoðun jafnhliða því, sem ég lýsi
skákstíl beggja keppenda og viðhorfi
þeirra til skákarinnar.
í þeirri hörðu samkeppni, sem nú ríkir
í skákheiminum, skiptir afar miklu máli
fyrir sérhvcrn skákmann, að hann sé rétt
undirbúinn, þegar út í baráttuna er komið.
Heilsa hans verður að vera í góðu lagi,
taugarnar vel hvíldar og hugurinn fersk-
ur og næmur. Ekki cr að efa, að Tal, sem
aðeins er 24 ára að aldri, hefur í hendi
sér að uppfylla þessi skilyrði, en hætt er
við, að Botvinnik, sem þegar hefur að
baki 30 ára þrotlausan skákferil, veitist
erfiðara að skapa sér það sálarjafnvægi,
sem með þarf. Hann er þegar kominn
af bezta skciði scm skákmaður, taugarnar
farnar að gefa sig vegna takmarkalausrar
áreynslu, hugurinn varla jafn sveigjan-
legur og áður og næmleikinn farinn að
dofna. Aldursmunurinn gefur okkur
þannig fremur ncikvæða mynd af ein-
víginu, það minnir helzt á eldri mann,
sem ver síðustu kröftum sínum til að
verjast ásókn ungs og metorðagjarns
manns. Væri Botvinnik gefin svo sem
tíu ár af ævi sinni (eða sú geta, sem hann
hafði mesta) mundi ég í miklum vafa
um, hvorum þessara manna bæri að spá
sigri, og mundi ég ekki síður halda fram
hlut Botvinniks.
Einvígi háð undir þessum kringum-
stæðum væri ekki einungis fróðlegt fyrir
þá sök, að þarna lciddu saman hesta sína
tvö af stórveldum skákarinnar, heldur
einnig vegna |tess, að þar væri um að
ræða eins konar uppgjör tveggja and-
stæðra skákstíla, varðir af hæfustu full-
trúum sínum. Botvinnik og Tal hafa sem
sé gjörólíkan skákstíl. Botvinnik er hinn
sanni herstjórnarsnillingur (strategist)
skákarinnar, hann leggur drögin að hern-