Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1960, Side 91

Andvari - 01.10.1960, Side 91
ANDVARI ÍSLENZK LJÓÐAGERÐ 1959 281 kvæðin eru rímur heldur ljóð, sem höf- undarnir hafa kennt við rímur eða man- söngva af hótfyndni. Rímurnar eru svo brot og verða alls ekki heildarmynd nema örfáar. Bókin er hins vegar forvitnileg, þar eð mörg þjóðkunn skáld sitja bekk hennar. En rímurnar hafa ósköp lítið skáldskapargildi. Einhæfni skáldanna er átakanleg. Rímnatilbrigðin eru til dæmis engin að kalla, þegar kvenkenningarnar eru undan skildar. Vinnubrögð skáldanna eru öll cins og ástæðan sú, að þctta eru ekki rímur ortar í alvöru heldur til gam- ans, þó að skemmtilegheitin fari iðulega forgörðum. Sveinbirni á Draghálsi skjátl- ast hrapallega, ef hann ætlar, að þessi bók verði til þess að endurnýja rímna- skáldskapinn. Hún er þvert á móti sönn- un þess, að gamli rímnaskáldskapurinn er úr sögunni, hvort sem mönnum líkar bctur eða verr. Einar Benediktsson og Orn Arnarson gátu ekki endurvakið íþrótt hans, hvað þá höfundar ,,Rimnavöku“. Þeir nota rímnaformið aðeins í orði kveðnu, og þess vegna verður kveðskapur þeirra eins konar skopstæling á íslenzku rímunum. Aftur á móti eru í bókinni ýmsar snjallar vísur, og helzt mun gildi hennar sem kennslukvers í bragarháttum. Hér skal ekki um dæmt, hversu safna.nda hefur tekizt rímnavalið, en undirritaður saknar brags, sem skólasveinar í höfuð- stað Norðurlands ortu sér til dægrastytt- ingar fyrir mörgum árum og hefði gert bók þessa mun læsilegri en raun hefur á orðið. Skopstælingar eiga að vera skemmtilegar. Gríma alvörunnar fer þeim oftast illa. Hitt er annað mál, að það, sem menn yrkja að gamni sínu og kunn- ingja sinna, á sjaldan brýnt erindi á prent, og sennilega er Sveinbjörn Beinteinsson ckkert spéfíkinn, þó að hann hafi óaf- vitandi hæðzt að örlögum rímnakveð- skaparins með því að stofna til þessarar hókar. Gunnar Dal er enn á léttu skeiði, en hefur samt séð ástæðu til að gera úrval úr tveimur ljóðabókum sínum og bætt við nokkrum nýjum kvæðum. „Október- ljóð“ er því eins konar sýnisbók. Skoðanir um skáldskap Gunnar eru skiptar. Sumir telja hann í meistaraflokki, en aðrir vilja neita honum um alla viðurkenningu. Ég hcf sitthvað við ljóðagerð hans að athuga, en tel beztu kvæði hans sérstæðan og áhrifamikinn skáldskap. Gunnar Dal hcfur lagt stund á heimspeki og dvalizt austur á Indlandi, þar sem gáfuðum mönnum gefst kostur á margþættum vís- dómi. Þessa gætir allmikið í Ijóðum Gunnars og tryggir honum athyglisverða sérstöðu á skáldaþingi ungu kynslóðar- innar. Sumum finnst aftur á móti, að sambýli heimspeki og skáldskapar heppn- ist ekki alls kostar, enda munu þess dæmin. Ég tel hins vegar ótvírætt, að mörg heimspekiljóð Gunnars Dal séu góður skáldskapur, þó að mér falli bezt smákvæði hans, sem túlka náttúruskyn og fegurðarþrá. Þá hef ég í huga kvæðin Hrynur lauf, Þú sem áttir allan heiminn, Sjá þessi rauðu ský, Við Ganges, Gull að láni og Uppruni ljóðsins, þó að það síðast talda minni á viðhorf og aðferð Davíðs Stefánssonar. Álfar eru samt að mínum dómi úrslitasigur Gunnars Dal. Hins vegar kann ég engan veginn að meta vitsmunakvæði eins og Snæ, Sfinx- inn og hamingjuna, í byrjun þings, Kvæðið um manninn og Tröllið og dverg- inn. Gunnar Dal má mín vegna hafa hverja þá skoðun, scm hann vill, en afstaða gerir ckki kvæði lífvænlegt, ef skáldskapinn vantar, og nefnd ljóð ein- kennast fremur af áróðri en listrænni við- leitni að skynja eða túlka. Skáld verður að koma einhverju nýju á framfæri við lesandann til að eiga tignarheitið skilið. Misheppnist sú tilraun, er naumast um skáldskap að ræða, heldur röðun orða

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.