Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1998, Síða 11

Andvari - 01.01.1998, Síða 11
andvari FRÁ RITSTJÓRA 9 flestum með vaxandi alvöru. Þessi kvilli lýsir sér í áberandi löngun til þess að épater les bourgeois, eins og Frakkar kalla það, þ. e. a. s. ganga fram af borgurunum - segja einhverja ósvífni, verulega krassandi, svo að heið- virður lesandi sem á sér einskis ills von, rjúki upp í vonsku. . .“ (Tilvitnaðar greinar Kristjáns standa í safninu í gróandanum, 1955). Það er augljóst að Kristjáni Albertssyni, hinum fágaða borgara, hugnast ekki þessi eiginleiki höfundarins, en samt viðurkennir hann að stríðnín sé ein af sterkustu ástríðum skáldsnillingsins. An þeirrar ástríðu hefði Halldór Laxness aldrei orðið sá aflvaki sem raun ber vitni. Með aldri dró úr áreitni hans eins og eðlilegt er. Samt hélt hann alltaf áfram að skjóta örvum á lút- ersku kirkjuna og í Grikklandsárinu, síðustu eiginlegu bók sinni, 1980, lýsir hann íslensku þjóðlífi upp úr aldamótum: „Við höfðum verið „bænda- menníng“, sem þýddi öreigabollok og bjálfagángur uppí sveit.“ Er ekki þarna kominn hinn gamli og síungi stríðni höfundur sem hefur óskerta löngun til að „segja einhverja ósvífni“ og gat ekki stillt sig um á efri árum að strjúka „bændasinnunum“ lítið eitt andhæris, einu sinni enn? Það eru að sumu leyti ill örlög skálds að vera hafinn á stall. Miklir höf- undar kalla á gagnrýni, einungis í frjóum átökum við lesendur lifa verk þeirra áfram. Kristján Karlsson vék að því í snjallri eftirmælagrein þar sem hann setti reyndar fram þá nýstárlegu skoðun að Halldór sé fyrst og fremst Ijóðskáld. Kristján sagði að hann hefði frá löndum sínum hlotið „feikn af skilningslausu lofi“, erlendir ritdómarar stundum reynt að gera hann að „einhverskonar skandinaviskum leiðindapostula eða einhverskonar forn- sagnahöfundi. . . . í seinni tíð höfum við reynt að gera hann að þjóðlegu minnismerki og eigum þess vegna á hættu að fara að sniðganga verk hans með öllu.“ (Mbl. 14. febrúar 1998). Þetta er hættan við goðsagnasmíð um verk afreksmanna. Það var um Halldór Kiljan sagt að á sinni tíð hefði hann gert fleiri ís- lendinga að kommúnistum en nokkur annar maður. Að vísu kallaði Hall- dór sig aldrei kommúnista heldur vinstri sósíalista, þótt almennt hafi ekki mikill greinarmunur verið á því gerður. En Halldór var um skeið rammur stalínisti eins og Gerska ævintýrið (þ. e. frumútgáfan) ber glöggt vitni um. Víst er það harmleikur í ævi hvers húmanista að hafa orðið til að veita slík- um mannkynsböðli sem bóndanum í Kreml siðferðilegan stuðning, - þótt raunar hefði hann sínar mannlegu hliðar, eins og sjá má dæmi um í þessu Andvarahefti. Um stalínisma Halldórs og tengsl við Sovétríkin hafa menn yfirleitt hliðrað sér hjá að fjalla af fullri hreinskilni. En heimildir sem þetta varða hafa nýlega verið dregnar fram í Moskvu og auðvitað kemur að því að sagnfræðingar taka efnið til rækilegrar rannsóknar. Sannleikann þarf að leiða í ljós eftir því sem fært er, þótt beiskur geti reynst.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.