Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1998, Page 110

Andvari - 01.01.1998, Page 110
108 KRISTJÁN B. JÓNASSON ANDVARI II. Gagnabanki náttúrunnar Ef sveitamaðurinn les líf sitt af stráum, hvar las þá þéttbýlisbúinn sögu sína? Þessari spurningu reyndi Indriði að svara strax í sinni fyrstu skáld- sögu, Sjötíu og níu af stöðinni, og ef marka mátti dapurleg endalok að- alsöguhetjunnar, Ragnars leigubílstjóra, var sá lestur fyrst og fremst mis- lestur - Ragnar dó af því að hann kunni ekki að lesa úr táknum borgarinn- ar. Hann kemur suður, fer að vinna sem leigubílstjóri og kemst í kynni við nokkur af hugðarefnum menningarumræðu sjötta áratugarins, svo sem veru bandaríska hersins hér á landi og myndun nýrrar borgarvitundar. Hann fellur fyrir yfirstéttarpíunni Gógó, kemst að því að hún er í tygjum við yfirmann í bandaríska herliðinu og ekur fullur norður yfir heiðar þar sem hann missir stjórn á bílnum og deyr. Harmrænn endir sögunnar sem og tregafullir kaflar Lands og sona, þar sem gamli bóndinn Ólafur fær slag og deyr og sonurinn selur eigur hans og snýr baki við heimasveit og heima- sætu til að byrja upp á nýtt fyrir sunnan, virtust svo sannarlega benda til þess að ný samfélagsskipan eftirstríðsáranna væri grundvölluð á óheyrðu miskunnarleysi, ef ekki hreinlega á morði. Allir þjóðvegir enduðu í borg- inni og þaðan lá engin leið til baka. Líkt og Ameríkufari varð bóndasonur- inn að brenna allar brýr að baki sér til að geta þrifist í borginni og gleyma því sem hann hafði áður lært, sveitin var skotin í hausinn og husluð uppi á mel eins og grái klárinn í Landi og sonum. Puttinn sem þrýsti á gikkinn var hins vegar ekki sveitafingur. Þar var fjarstýrður andi borgarinnar að verki, nútíminn sem knúði fram sögulegar sviptingar af gerræðislegri einurð sem enginn andlegur stíflugarður gat spornað við. Sagan var í senn hræðileg og óumflýjanleg. í stuttu máli tragísk. Ekkert virtist geta brúað andstæðu borgar og sveitar nema dauðinn. Því má hins vegar ekki gleyma að þótt andstæða borgar og sveitar væri fyrirferðarmikil í frásagnarverkum bæði fyrir- og eftirstríðsára var hún fyrst og fremst grunnlíkan sem notað var til að lýsa nútímavæðingu samfélags- ins; hún var þegar nánar er að gætt ekki meginviðfangsefni íslenskra bók- mennta fimmta og sjötta áratugarins. Andstæðan var aflvél til að knýja áfram frásagnir sem fjölluðu um margskonar viðfangsefni sem þó virtust ekki geta tekið á sig sannfærandi mynd í bókmenntasamhengi síns tíma nema vafðar inn í umbúðir búferlaflutninganna. Það er til að mynda mikill munur á því að túlka sagnabálk Ragnheiðar Jónsdóttur um Þóru í Hvammi sem andstæðu borgar og sveitar, það er að segja sem spegilmynd af átökum ólíkra samfélags- og vinnuhátta, eða sem frásögn af myndun og þróun kvenlegrar sjálfsveru andspænis bakgrunni búsetubreytinganna, eins og Dagný Kristjánsdóttir gerir í riti sínu um skáldsögur Ragnheiðar.7 Að sama
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.