Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1998, Page 119

Andvari - 01.01.1998, Page 119
andvari RÖDD ÚR HÁTALARA - SKILABOÐ I TÓTTARVEGG 117 þess sem treystir á náttúruna til að kalla fram upplýsingarnar sem hann þarfnast til að eiga sér verðmætt líf. Um leið og landið hættir að segja okk- ur eitthvað erum við ekki lengur hluti af þessari viðkvæmu lífheild. Óttinn við að glata sinni þjóðlegu sjálfsmynd sem kemur fram í samræðum Tóm- asar og Einars birtist í raun sem ótti við að helsti gagnagrunnur alþýðufólks til sveita, gagnagrunnur sem geymir verðmætar upplýsingar um sögu, líf og land, verði óvirkur í einni svipan vegna þess að enginn ræður lengur yfir tækninni til að nota hann. Eins og Land og synir og seinna Unglingsvetur sýna glöggt gerði Indriði sér ljósa grein fyrir því að færslan frá einu upplýsingakerfi til annars hafði tvfbentar afleiðingar í för með sér. í fyrsta lagi var ómögulegt að flytja upp- lýsingarnar yfir á nýtt snið án þess að tapa einhverju. Eðli hins náttúrulega upplýsingabanka var allt annað en eðli ritaðs máls - að ekki sé talað um rafrænar boðrásir, líkar þeim sem lýst er í Sjötíu og níu af stöðinni, og þyg&jast á því að boðin eru ekki til nema þá stund sem tekur að flytja þau. Áhrifamáttur boðanna verður að vísu meiri eftir því sem boðrásirnar verða greiðfærari - það er enda einn helsti hornsteinn upplýsingakenningar Shannons19 - en um leið verður æ tilgangslausara að koma þeim fyrir í nýj- um gagnabönkum. Afrakstur skrásetjarans var þrátt fyrir vilja hans og dugnað aldrei annað en yfirfærsla upplýsinga yfir á fyrirframskilgreint snið. Hvernig gat hann til dæmis skráð lykt, bragð, keim, hljómfall og hljóð sem utynduðu uppistöðuna í gagnabanka tóttarbrotanna? í öðru lagi bæla öll þjóðfélög neikvæðar afleiðingar nýrrar tækni.20 Þótt „betri“ tækni hafi haldið innreið sína í íslenskt samfélag þýddi það ekki jákvæða viðbót við þá sem fyrir var heldur varð að hafna hinni eldri til að geta tekið við þeirri nýju. Ef til vill varð það hlutverk bókmenntanna að fjalla um þessa afneit- un, þessa bælingu hins gamla og úrelta. En því má samt ekki gleyma að hlutverk náttúrugagnabankans er ekki á ueinn hátt eðlisólíkt hlutverki gagnabankans sem borgarmaðurinn tengir sig við. Báðir þjóna þeir þeim tilgangi að veita upplýsingar sem tiltekinn hópur af fólki notar til að halda uppi samskiptum og halda utan um mikil- Væg gögn sem skipta máli fyrir sjálfsvitund þess, sögu og tilvist. Það sem Hndið segir Ólafi í Landi og sonum er í raun ekki ýkja frábrugðið því sem bíllinn segir Ragnari Sigurðssyni í Sjötíu og níu af stöðinni. í báðum tilvik- Um leitar sjálfsveran að samskiptafleti við umhverfi sitt. Annars vegar fara þessi samskipti fram í gegnum náttúruna sem verður að miðlunartæki á uulli hugveru og sögu/samfélags. Hins vegar fara þau fram í gegnum tækn- ina sem þenur líkamann út fyrir líffræðilegar takmarkanir sínar og auðveld- ar honum þannig að fanga umhverfi sitt, fanga náttúruna. Sambandi Ragn- ars við náttúruna er miðlað í gegnum tæknina, og minningar hans og bak- grunnur eru skráð í hluti úr tækniheiminum - Indriði G. Þorsteinsson var í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.