Andvari - 01.01.1998, Qupperneq 131
JÓN VIÐAR JÓNSSON
Af óskrifaðri leiklistarsögu
Nokkrar athugasemdir við ritið Leikfélag Reykjavíkur
- Aldarsaga eftir Þórunni Valdimarsdóttur
og Eggert Þór Bernharðsson
Þegar stofnanir, félög eða fyrirtæki með langa sögu að baki eiga stórafmæli,
er ekki nema eðlilegt að þau noti tækifærið til að minna á framlag sitt til
þjóðlífs og menningar með útgáfu sögurita af einhverju tagi. Almennt séð
koma þar þrír kostir helst til greina. í fyrsta lagi læsilegt yfirlitsrit, sem er
ekki byggt á frumrannsóknum, en kynnir áhugamönnum helstu atriði sög-
unnar, eftir því sem þau eru þekkt og skilin á líðandi stund. í öðru lagi rit
sem er afrakstur vandaðra rannsókna á öllum tiltækum frumgögnum. í
þriðja lagi má hugsa sér eins konar millileið, þ.e. rit sem birtir sýnishorn
frumgagna, nauðsynlegar skrár og annað þess háttar, ásamt auðlesnu sögu-
yfirliti í formi ritgerða eða endurminningagreina.
Þegar Leikfélag Reykjavíkur varð fimmtugt árið 1947, fór það þriðju
leiðina. Það gaf þá út vandað rit með ávörpum og kveðjum úr afmælishófi
félagsins, safni ljósmynda og nokkrum sögulegum greinum. Eru hinar viða-
niestu eftir Vilhjálm Þ. Gíslason, Eufemíu Waage og Brynjólf Jóhannesson.
I bókarlok eru ýmsar skrár, m.a. yfir verkefni og sýningar félagsins frá upp-
hafi og hlutverk helstu leikenda. Eru þær hin mestu þarfaþing fyrir alla
sem þurfa að fást við sögu L.R., einkum verkefna- og sýningaskráin.
Skrárnar voru teknar saman af Lárusi Sigurbjörnssyni borgarskjalaverði,
°g mér hefur alltaf fundist augljóst, að hann hafi átt stærri þátt í ritinu en
nokkur annar, þó að það sé af einhverjum sökum hvergi tíundað sérstak-
íega.
A sjötíu og fimm ára afmæli L.R. árið 1972 kom síðan út söguritið Leik-
húsið við Tjörnina eftir Svein Einarsson. Heiti bókarinnar er að vísu rang-
nefni að því leyti, að hún er langt frá því að vera saga allrar leikstarfsemi,
sem fram hefur farið í leikhúsinu við Tjörnina. Fjölmargir aðrir en L.R.
hafa í tímans rás staðið fyrir leiksýningum í Iðnó; það nægir að nefna revíu-
sýningar bæði Reykjavíkurannáls og Fjalakattarins, söngleiki og óperettur,