Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1998, Síða 144

Andvari - 01.01.1998, Síða 144
142 JÓN VIÐAR JÓNSSON ANDVARI Reykvískir leikhúsgestir kunnu ekki að meta Sex verur leita höfundar. Að því er kemur fram í grein í Vísi nokkru síðar var þó fullt hús í fyrstu þrjú skiptin, en í fjórða skiptið varð að aflýsa sýningu vegna lélegrar að- sóknar.43 Alls urðu sýningarnar aðeins fimm, m.ö.o. leikurinn nánast féll. Þessi útkoma þarf ekki að fela í sér neinn áfellisdóm um verk Indriða, en ein sér bendir hún þó ekki til þess, að hann hafi haft erindi sem erfiði. „Amicus“ setur að sönnu á langar tölur um sýninguna, telur hana sýna glöggt leikstjórnarhæfileika Indriða og skrifar m.a.: „Notkun ljóssins, svip- breytingar og hlátur leikaranna, sem eru áhorfendur á leiksviðinu, stilling hraðans - allt ber þetta vott um næman skilning hans á því, að hægt er að láta smáu atriðin jafnt þeim stóru sýna það sem í leiknum býr. - Það væri ekki fráleitt að segja, að Indriði í mörgu minni allmikið á ’expressionist- isku’ leikstjórana þýsku, og er þá ekki leiðum að líkjast. - Það sem þó er mest um vert, er, að Indriði er bæði frumlegur og sjálfstæður sem leik- stjóri.“44 Kannast lesandinn við þessi orð? Jú, mikið rétt, eins og hér er áður fram komið, tekur Þórunn Valdimarsdóttir þau nánast óbreytt upp í texta sinn og fer með þau eins og um almenna og óumdeilda skoðun hafi verið að ræða. Þó eru þessar fullyrðingar svo almennt orðaðar og svo óljósar, að þær eru í raun og veru gersamlega innantómar. „Amicus“ nefnir t.d. ekki eitt einasta dæmi um það, í hverju „frumleiki“ og „sjálfstæði“ Indriða sem leikstjóra hafi komið fram, hvernig hann hafi notað ljósið, hvað hafi falist í „svipbreytingum og hlátri leikendanna“. Á „samanburð“ „Amicusar“ á starfi Indriða og sviðsetningum „expressionistisku“ leikstjóranna, sem réðu flestir yfir þrautþjálfuðum atvinnuleikurum og vel búnum leiksviðum, að ekki sé minnst á þann sér-þýska jarðveg sem þeir voru sprottnir úr, er ekki orðum eyðandi. Það er ekki einu sinni ljóst, hvort „Amicus“ hafði séð nokkuð sjálfur af umræddum listaverkum eða aðeins lesið sér til um þau. Það má vel vera, að þessi skrif í Vísi hafi átt að vera einhvers konar vinar- bragð við Indriða; sem listgagnrýni eru þau svo fátækleg, að það tekur því varla að vitna í þau. í leikhúsinu er oft tekist á um völd og áhrif og algengt að menn myndi bandalög til að tryggja stöðu sína. Vandaður leikgagnrýnandi heldur sig ut- an við slík átök og fylgir listrænum sjónarmiðum einum. Einungis með þeim hætti getur hann skapað sér traust almennings og annarra dómbærra aðila og orðið sá vegvísir sem hann á að vera. En íslensk leiklistargagnrýni var ekki nema að litlu leyti orðin svo þroskuð á þriðja áratug aldarinnar. Því verður leiksögufræðingurinn að gera sér fulla grein fyrir, ætli hann ekki að enda einhvers staðar úti í móa. Árið 1923 hafði Alþingi samþykkt sér- stök lög um byggingu Þjóðleikhúss og leikhússjóðurinn óx nú svo ört, að menn sáu hilla undir leikhúsið nýja innan fárra ára. Auðvitað veltu þeir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.