Andvari - 01.01.1998, Blaðsíða 158
156
JÓN VIÐAR JÓNSSON
ANDVARI
50. Sjá Morgunblaðið 15.2. 1927 og Vísi 16.2. 1927. í þessum fréttaklausum taka blöðin
strax eindregna afstöðu í málinu. Morgunblaðið segir menn hafa fagnað fréttinni af til-
boði Kambans „því að hér væri einstakt tækifæri til að fá leikforystu í nútíðarsniði" sem
yrði „áreiðanlega gleðiefni Reykvíkinga“. Tónninn er allur annar í Vísi daginn eftir. Þar
segir m.a. að Kamban hafi þrátt fyrir neitun formanns L.R. komið til landsins „og ætlast
enn til þess að formaður leikfélagsins víki fyrir sér þegar í stað, láti af störfum þeim sem
félagið hafði kosið hann til að vinna, og afhendi sér til fullra umráða og á leigu eignir fé-
lagsins og leikendur".
51. Kamban lýsir sjálfur leikstjórnarferli sínum í Morgunblaðinu 2.3. 1927. Hann hafði þá
leikstýrt sýningum eigin verka við helstu leikhús Kaupmannahafnar, Konunglega leik-
húsið og Dagmar-leikhúsið og auk þess verið ráðinn um tíma við Folketeatret. Eftir
1930 var hann einnig um skeið fastráðinn við Konunglega leikhúsið.
52. Sjá viðtal við Soffíu í Morgunblaðinu 24.2. 1927. Hún nefndist þá enn opinberlega
Kvaran, þar eð hún var ekki formlega skilin við mann sinn Ágúst Kvaran.
53. Sjá Gerðabók Leikfélags Reykjavíkur 1897-1930, Borgarskjalasafn Reykjavíkur,
A-1598, 12.2. og 22.2. 1927.
54. Vísir 23.2. 1927.
55. Að frátöldum þeim greinum Kambans og Indriða Waages í Morgunblaðinu og Vísi, sem
vitnað hefur verið til, voru ritaðar um málið eftirtaldar greinar: Vísir fjallaði um það í
nafnlausri grein 26.2. („Kamban og Leikfélagið") sem Kamban svaraði með langri grein
í Morgunblaðinu 2.3. Henni svaraði Vísir um hæl 3.3. („Kamban og Leikfélagið - Var
það ætlun Kambans að ’sprengja’ Leikfélagið?“). f sama blaði birtist grein eftir Jens B.
Waage („Til hr. Guðmundar Kambans"). Henni svaraði Kamban í Morgunblaðinu 5.3.
(„Svar til hr. Jens B. Waages“). Sama dag birtist í Vísi svar hans við Ví'.rá-greininni
(„Leikfélagið í Politiken") ásamt athugasemd ritstjórans, þar sem m.a. kom fram, að
blaðið hefði neitað að taka við svargrein Kambans til Jens B. Waages. Jens B. Waage
svaraði Kamban í Vísi 8.3. (,,Svar“) og Kamban honum í Morgunblaðinu 10.3. Par með
var þeim orðaskiptum lokið. 11.3. birtist svo enn í Vísi löng grein „’Æviferilsskýrsla’
Guðmundar Kambans“, og daginn eftir 12.3. í Verði löng grein eftir Kristján Albertsson
(„Guðmundur Kamban“), þar sem hann tók svari Kambans skýrt og skorinort. Þá grein
prentaði Morgunblaðið óbreytta daginn eftir. Vísir þurfti nú einnig að svara þessu inn-
leggi og gerði það 19.3. („Æviferilsskýrslan og Kristján Albertsson"). Kristján svaraði
þeirri grein í Morgunblaðinu 23.3. („Svargrein ’Vísis’") og átti þar síðasta orðið.
56. Morgunblaðið 2.3. 1927.
57. Sjá Vísi 3.3. 1927, Morgunblaðið 5.3. 1927, Vísi 8.3. 1927 og Morgunblaðið 10.3. 1927.
58. Sjá t.d. Vísi 19.3. 1927.
59. Morgunblaðið 23.3. 1927.
60. Sjá Morgunblaðið 17.3., 18.3. og 8.4. 1927.
61. Morgunblaðið 17.3. 1927.
62. Þorvarður Þorvarðsson var t.d. felldur í formannskjöri árið 1904 eftir sjö ára farsælan
formennskuferil af Árna Eiríkssyni og starfaði eftir það ekkert með félaginu, þó að það
gerði hann löngu síðar að heiðursfélaga sínum. Um svipað leyti hætti Gunnþórunn
Halldórsdóttir, sem verið hafði ein helsta leikkona félagsins frá stofnun þess, að leika
með því í hátt í þrjá áratugi. Sjá Geniet och vagvisaren, bls. 107-111.
63. Sjá t.d. Leyndarmál frú Stefaníu, bls. 239 - 245.
64. Sjá Aldarsögu, bls. 65, 98-99, 106 og 112.
65. Aldarsaga, bls. 131.
66. Kamban gefur í fyrstu Morgunblaðs-grcin sinni þá skýringu á því, hversu mikið honum
liggi á, að hann hafi fengið tilboð um að leikstýra einu verka sinna í New York þá um