Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2001, Page 146

Andvari - 01.01.2001, Page 146
144 ÁSTRÁÐUR EYSTEINSSON ANDVARI ir ef ekki allir þekkja af eigin raun, en hinsvegar er þetta sjaldan viðvarandi ástand, nema hjá þeim sem teljast sjúkir á geði. Mörk slíkrar „geðbilunar“ liggja þó vissulega víða um samfélag okkar og menningarheim og þau eru meðal þeirra landamæra sem Svava kannar í verkum sínum. Ástæðunnar fyrir tómarúminu sem Snorri hafnar í er m. a. að leita í sam- ræðum við Tómas, eiginmann Freyju, þar sem þeir skoða saman grjótvegg- inn góða og Tómas spyr hvort veggurinn hafi ekki verið dýr. „Þeir horfðust í augu. Augnaráð þeirra toguðust á, mældu krafta sína“ (VG 16). Leit Snorra að augnaráði konu sinnar í lokin verður enn aumkunarverðari í ljósi þess að áður hafði hann séð Tómas og Freyju horfast í augu eitt merkingarþrungið andartak. Hann er því í ýmsum skilningi orðinn eins og skuggi Tómasar, gjörsamlega afmannaður, hefur glatað „stöðu“ sinni. Styðja má þessa túlkun með því að líta á grjótvegginn sem karlmennskutákn; Tómas spyr hvort hann sé úr Drápuhlíð en Snorri svarar: „Búlandstindi" (VG 16). í vissum skilningi stendur því ígildi fjalls og fjallstinds þama í stofunni, en steinarnir eru „tamdir“ og „undirgefnir“ eins og segir í textanum (VG 13). Hinsvegar minnir þessi saga líka á aðrar sögur Svövu þar sem í sjónmiði eru konur sem á hliðstæðan hátt passa ekki í hlutverk „konu“ eða „frúar“ og ef þær geta ekki verið í stöðu konunnar, hvað og hvar eiga þær þá að vera? Tómarúmið blasir við. En það sprettur ekki síst úr veggjunum sjálfum, úr þeim skilum sem eiga að marka og tryggja mannverunni stað, einkarými. Þess vegna er þessi umframveggur svo talandi en samt svo óræður. Grjót- veggi má sjá víðar í þessu smásagnasafni og í sögunni „Myndir“ eru önnur hjón með grjótvegg úr Búlandstindi; þar með rústar Svava öllum frumleika sem kynni að tengjast þessari skreytingu. En hvað merkir þessi veggur? Snorri glímir sjálfur við þessa spumingu: „En þama stóð hann og guð mátti vita hvers vegna; var það eingöngu vegna þess að hlaðinn grjótveggur þótti fínn í nýjum stofum, var mælikvarði á smekk og peninga? - Nei, önnur ástæða hlaut að vera til, bókstaflega mátti til ..." (VG 12-13). Einn og sér merkir veggurinn ekki neitt; eins og sérríflaskan er hann tómt tákn; hin nærtæka merking hans sem borgaralegs stöðutákns ristir grunnt og lesandi lætur sér þá skírskotun vart nægja frekar en Snorri sjálfur. Eins og steinn yfirleitt í sögum Svövu, hvort sem hann birtist í formi steinvölu, bjargs, hrauns, fjalls, steinsteypu og þar með bygginga, eða annarra grjót- kenndra efna eins og malbiks, markar þessi grjótveggur að einhverju leyti umhverfi, stað og tilverutengsl persónanna. Steinninn er mótleikari mannver- unnar og á milli þeirra eiga svo önnur náttúrufyrirbrigði heima. Það kann vel að vera að Island sé land elds og ísa, fossa og hvera, en eins og fram kemur í fagurfræði og landafræði Svövu Jakobsdóttur er ísland öðru fremur land grjótsins. Samlíf manns og steins er henni hugleikið og þótt við kunnum að nema firringu og æpandi einmanakennd í sumum sögum hennar, er hið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.