Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1950, Page 72

Andvari - 01.01.1950, Page 72
68 Barði Guðmundsson ANDVARI norður til sveita, við það ef Sturla vill lylgja mér.“ .... Var nú ráðin norðurför þeirra, og skildu að því. Þorgils reið í Reykjaholt, og með honum þrír tugir manna. Ábóti reið í Bæ, en Sturla í Ás.“ — Samkvæmt Ljósvetninga sögu fellur Koðrán, son Guðmundar ríka, í orustunni við Kakalahól. Vígsakaraðili gegn Ljósvetning- um er hróðir hans, Eyjólfur hinn halti á Möðruvöllum í Eyja- firði. Frá liðsbón hans er þannig greint: „Eyjólfur sendi menn til allra höfðingja að biðja þá liðveizlu og svo vestur til Gellis vinar síns, að hann fjölmennti til Hegranesþings. Gellir var góður drengur. Eyjólfur bauð eyri silfurs fyrir nef hvert og hverjum höfðinga, þeim er til þings riði, hálfa mörk. Llann sendi menn til sona Eiðs í Ás í Borgarljörð og bauð þeim fé til liðveizlu og svo Goðdælum. Þá var umræða á, að Hrafn myndi eigi fyrir sökum hafður, því að liann þótti ekki mannhættlegur verið liafa á fundinum. Vel flcstir höfðingjar hétu Eyjólfi liði.“ Sameiginleg háðurn frásögnum eru þessi atriði: Bæjarnafnið Ás í Hálsasveit. Er bær sá hvergi nelndur annars staðar í sögun- um. Llöfðingi leitar liðsinnis til þess að knýja fram mannbætur eða koma fram hefndum fyrir víg bróður síns. Liðsbóninni er sérstaklega beint til höfðingja Snæfellinga og hann beðinn að koma liðsterkur norður í land. Fjárgreiðslum er heitið fyrir hjálp- ina. Haft er orð á því, að vægilega skuli í sakir farið við mann að nafni Hrafn. Állt liggur þetta á yfirhorðinu, enda þarf ekki að kafa djúpt til þess að finna fleiri gögn, er sýni hvernig sam- bandi frásagnanna er varið. Gellir varð við liðsbón Eyjólfs og „kom vestan með tvö hundruð manna.“ Þorgils skarði varð einnig við liðveizlubóninni og veitti Þorvarði fulltingi með tvö hundruð manna sveit. Er komizt svo að orði í Þorgils sögu, þa er greinir frá norðurreið höfðingjanna eftir Rauðsgilsfundinn: „Riðu þeir Þorvarður og Þorgils til Hörgárdalsheiðar og myndi hafa úr Skagafirði nær sjötíu manna . . . . og voru þeir allir af Þor- gils hendi .... Þorgils reið á Þúfnavöllu. En er menn voru mettir,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.