Andvari - 01.01.1950, Blaðsíða 95
andvari
Stefnt að höfundi Njálu
91
mund, utanfarir og Laufás, en þessi atriði koma eftirminnilega
frarn í frásögninni um kvennamál Ögmundar. Tvíbýli er á Drafla-
stöðum um 1195 og Björn bóndi Þuríðar í utanlandsför. Um
Laufás er það að segja, að sterkar líkur benda til þess, að á 12.
öld bafi búið þar niðjar Eyjólfs halta. Má vel vera, að Ketill
Möðruvellingaprestur sé sannsögulegur og bafi átt þar heima,
en jámburð hefir hann ekki látið fram fara í Laufási á dögum
ísleifs Skálholtsbiskups. Fyrirmynd járnburðarsögunnar er auð-
fundin: Llún er frá tíð Klængs Skálholtsbiskups en ekki ísleifs.
Veturinn 1156—1157 dvaldi Þorvarður Þorgeirsson í Hvammi
hjá Ingibjörgu systur sinni og manni hennar, Sturlu Þórðarsyni.
bá komst Þorvarður í kynni við Ingveldi, systur Einars Þor-
gilssonar að Staðarhóli. Idún var til heimilis í Sælinpsdalstungu.
UÖ Ö
m vorið fór Þorvarður heim til Eyjafjarðar, en Ingveldur „gerði
þá bú að Ballará. Ilún lét sér búa svefnhús og var þar löngum.
• • • En um haustið kom þar kona .... Hún var úr Eyjafirði. Og er
hun hafði skamma hríð dvalizt, þá ól hún barn .... Hún fór
um haustið með barnið til Eyjafjarðar." Var faðir þess sagður
Vera Þorsteinn nokkur. „En eigi að síður grunuðu menn, og
gerðu menn margort um ráð þeirra Þorvarðs og Ingveldar. Og
er Einar varð þessa var, leitar hann eftir um málið við Þorvarð
°g kvað hann mundu vilja hér um sönnu svara. En þau svör komu
hér í mót af Þorvarðs hendi að synja, og var festur járnburður
^yrir. En Klængur biskup skyldi gera urn, hversu sem skírsla
gerigi. Grímur hét sá maður norðlenzkur, er járnið bar. En er
úindin var leyst, þá var það atkvæði biskups, að hann væri skír.
Og eftir það sneri biskup i gerð og gerði fé á hendur Einari.
Og sleit svo því þingi.
bað sumar bjóst Þorvarður til utanferðar í Eyjafirði. Þá seldi
°g Ingveldur Sturlu fjárheimtur sínar allar, og tók hann sókn
ug vörn allra hennar mála, sem hann væri aðili. Eftir það réðst
ngveldur til ferðar á laun norður til Eyjafjarðar og skar sér
skör og karlklæði — og með henni Steingrímur kumbaldi Más-