Andvari - 01.01.1937, Blaðsíða 81
Andvari
Mídas konungur vorra tíma
77
hversu lítinn þátt gullið á í viðskiptum nú á tímum, og
enn síður getur hann gert grein fyrir, hverja þýðingu
það hafi. Hann hefir óljóst hugboð um, að þjóð hans
sé öruggari, ef hún á álitlegan gullforða, og þess vegna
vekur það honum fögnuð, þegar gullforðinn eykst, en
að sama skapi hryggist hann, ef gullforðinn rýrnar.
Það er þessi heimskulega lotning og undirgefni al-
niennings, sem fjármálamönnunum kemur vel, því að fyrir
hana eru þeir látnir óáreittir af lýðræðinu og fá að leika
^ausum hala. Ekki svo að skilja, að þeir hafi ekki mörg
önnur ráð til að hagræða skoðunum almennings. Af auði
sínum styrkja þeir háskóla og tryggja sér þannig, að
hinir áhrifamestu lærdómsmenn gangi þeim á hönd. Með
því að þeir eru í fylkingarbrjósti auðvaldsins, leiðir það
°9 af sjálfu sér, að þeir taka forustuna fyrir öllum, sem í
stjórnmálum láta stjórnast af ótta við kommúnismann.
^eð fjármálavaldi sínu geta þeir að eigin geðþótta auðg-
aÖ þjóðir og komið þeim á vonarvöl. En eg er í vafa
URi. að þessi vopn nægði þeim til sigurs, ef þeir hefði
ekki auk þeirra stuðning af hjátrúnni. Það er eftirtektar-
vefð staðreynd, að þó að fjármálin varði svo mjög hverja
emustu manneskju; karla, konur og börn, þá getur ekki
heitið, að skólarnir veiti nokkra fræðslu um þau, og jafn-
Vel í háskólunum eru þau stunduð af sárfáum. Þar við
hætist, að hinir fáu námsmenn, er leggja stund á þessi
^fæði við háskóla, fá ekki að læra þau eins og þau
^yndi verða lærð, ef ekki þyrfti að taka tillit til póli-
hskra hagsmuna. Til eru að vísu stofnanir, sem kenna
þessi fræði, óháðar hleypidómum auðvaldsins, en þær
eru mjög fáar. Venjan er, að öll fræðslan snýst um
Það að lofsyngja ríkjanda skipulag. Eg ætla, að allt þetta
standi í sambandi við það, að hjátrú og dulvísindi koma
Ser svo einkarvel fyrir forráðamenn fjármálstarfseminnar.