Andvari - 01.01.1937, Blaðsíða 11
Andvari
Dr. Valtýr Guömundsson
7
til að ljúka málinu, og féll það þar með úr sögunni.
— Dr. Valtýr missti ekki trúna á járnbrautir hér á landi,
og eftir því áhugamáli sínu mun hann hafa valið nafn
tímarits, sem stofnað var 1895, og hann var lengi rit-
stjóri að. Það hét Eimreiðin, og er fremst í fyrsta árgangi
grein með fyrirsögninni Járnbrautir og akbrautir, þar
sem ritstjórinn lýsir stefnu sinni í samgöngumálum á
sjó og landi. Vill hann leggja tvær aðaljárnbrautir, aðra
frá Reykjavík austur um Arness- og Rangárvalla sýslur,
hina til Akureyrar; fjölga skipaferðum milli íslands og
útlanda, einkum til Englands, og bæta strandferðirnar.
— Árið 1896 var dr. Valtýr kvaddur til Ameríku, til að
rannsaka og grafa út rústir í útjaðrinum á Boston, sem
sumir héldu, að væru frá dögum hinna fornu íslenzku
Vínlandsfara, en hann komst að þeirri niðurstöðu, að
svo mundi ekki vera, heldur mundu rústirnar stafa frá
hinum fyrstu landnámsmönnum eftir daga Kólumbusar.
Fór dr. Valtýr víða um byggðir Vestur-íslendinga, og
fann þá móður sína og hálfsystkini. Skrifaði hann
skemmtilega ferðasögu í Eimreiðina árið eftir, og lýkur
greininni með þeim ummælum, að ekki muni takast að
hefta vesturferðir með því að úthúða Ameríku og Vestur-
íslendingum, en betra ráð mundi að bæta samgöngur
og atvinnuvegi, svo að öllum yrði ljóst, að lífvænlegt
væri í landinu. — í þessari Ameríkuför var Þorsteinn
Erlingsson skáld með dr. Valtý.
Á þeim árum, sem hér um ræðir, tók eitt mál hug
þjóðarinnar meir en öll önnur. Það var stjórnarskrár-
málið, sem og var kallað endurskoðunarmál, því að það
snerist um endurskoðun stjórnarskrárinnar frá 1874.
Alþingi hafði fjórum sinnum samþykkt frumvörp um
nýja stjórnarskrá: 1885 og á aukaþingi 1886, 1893 og
á aukaþingi 1894. Vfir ísland skyldi skipa landstjóra