Andvari - 01.01.1937, Qupperneq 35
Andvari
Fiskirannsóknir
31
Orillubátar) geta flotið við hana, nema c. 4 tíma kring-
um stórstraumsfjöru.
b. S u m a r f e r ð i r fór ég einnig tvær á þessu tíma-
bili, í ágústmán., til viðbótar við sumarferðir, er ég hefi
stundum farið þangað áður, og var aðaltilgangurinn með
þeim einkum að reyna að ná í yngstu árganga þorsks-
ins til aldurs-ákvörðunar og jafnframt að athuga afla,
sem kynni að berast á land.
Fyrri ferðina fór ég 20.—26. ág. 1935. Dagana þar
á undan höfðu fáeinir bátar róið til fiskjar og aflað
nokkuð af þyrsklingi og stútungi, skötu og náskötu/én
við bryggjuna (í Járngerðarstaðahverfinu) var mikill smá-
ufsaafli (2. og 3. árg.) á dorg, eins og endranær. Vfir-
byggður bátur, sem stundaði dragnótaveiðar um vorið,
íékk töluvert af smáum og stórum skötusel í Hrauns-
leir. Má það teljast óvenjulegur afli, sem bendir á, að
þar muni vera nokkur uppvaxtarstöð fyrir þenna ófrýni-
fega fisk, sem annars er hér fremur fátt um, en er hins
vegar í miklu áliti sem ljúffengur matfiskur á útlendum
Riarkaði (ísaður), þegar höfuð og þunnildi eru burttek-
•n, enda gefur hann ekki góðu heilagfiski mikið eftir
að gæðum.
Síðari ferðina fór ég 14.—19. ág., en því miður var
8)ór þá lítið stundaður, vegna þess meðfram, að lítið
aflaðist og vildu menn helzt kenna því um, að fiskurinn
befði verið og væri fullur af æti (síli o. fl.) og tæki því
ekki beitu; en hins vegar hefir það lengstum verið svo,
að fátt er tíðast um fisk við SV-ströndina, bæði í Grinda-
vík og annars staðar við úthafið á SV-landi, um hásum-
ar‘ð (júlí og ág.), svo sjór er ekki stundaður nema í hjá-
verkum. og aðallega til þess að fá sér nýjan fisk í soð-
‘ð, til tilbreytingar frá saltfiskinum og trosinu, sem þá