Andvari - 01.01.1937, Page 112
Andvari
Dagsetning Stiklastaðaorustu.
Eftir Barða Guðmundsson, þjóðskjalavörð.
Sú heimild, sem veitir merkasta fræðslu um dánar-
dægur Olafs konungs helga, er, eins og kunnugt er, vísa
eftir Sighvat Þórðarson um myrkvann, þá er Stiklastaða-
orusta var háð:
Undr Iáfa þat ytar
eigi smátt, er máttit
sliæ-Njörðungum skorðu
skýlauss röðull hlýja;
drjúg varð á því dægri
(dagr náðit lit fögrum)
orrostu frák austan
atburð, konungs furða.1)
Vísan er ljós og skýr:
»Mennirnir telja það ekki lítið undur, að sólin í heiði
gat ekki hlýjað hermönnunum. Mikill fyrirboði varð
þann dag viðvíkjandi konunginum. Dagurinn fékk ekki
sinn fagra blæ. Eg heyrði að austan um þenna atburð
orustunnar*.
Eins og sjá má, er vísa þessi um undur þau, sem
gerðust þann dag, sem orustan var háð. Það er aug-
Ijóst, að þetta er það, sem skáldið kallar »atburð orr-
ostu«. Og fyrirboðinn er í því fólginn, að »dagr náðit
lit fögrum*, og að »skýlauss röðull máttit hlýja skorðu
skæ-Njörðungum«.