Andvari - 01.01.1937, Blaðsíða 115
Andvari
Dagsetning Stiklastaðaorustu.
111
um fall konungs í orustunni, en ekki tákn guðsreiði eða
sorgar út af óhæfuverki því, sem þegar hafði verið fram-
ið- Þannig komumst vér aftur að sömu niðurstöðu, sem
sé þeirri, að vísan sé kveðin, áður en helgi Olafs konungs
er viðurkennd, það er að segja, þegar eftir Iát hans.
Það er unnt að samræma þær tvær staðreyndir, að
Olafsmessa hefir verið haldin 29. júlí allt í frá miðri elleftu
öld og að sólmyrkvinn 31. ágúst 1030 varð meðan, Stikla-
staðaorusta stóð. Þann heimildarstað, sem fær oss lyk-
ilinn til þess að leysa þessa gátu, er að finna í 101. kapí-
tula helgisögu Ólafs konungs. Þar er dánardægur kon-
ungs ákveðið á þessa leið: >En þa var liðit frá burð
^rist drottens vars þus hundrað vætra oc IX vætr oc
XX oc CC vætrac.s) Síðustu orðin hafa útgefendur sög-
unnar álitið þýðingarlausa viðbót, en hér er þó aðeins
uni að ræða smávægilega ritvillu, því að ruglað er sam-
an u og n og eiga »CC vætr« að vera »CC nœtrc,
Samkvæmt þessum tímareikningi á þá Stiklastaðaorusta
að hafa verið háð 201. dag ársins 1030, sem að áliti
höfundarins er mánudagurinn 20. júlí.
Þetta er augljóst af undanfarandi kapítula sögunnar,
þar sem getið er um upptöku (translatio) líkama Ólafs
^elga. Þegar greint hefur verið frá hinu venjulega tíma-
akvæði, nefnilega, að lík konungs hafi legið í jörðu eitt
ar og fimm daga, heldur söguhöfundurinn áfram þeirri
kraftaverkasögu (sem annars er ókunn), að Grímkell
biskup hafi látið jarða líkið aftur, og að það hafi þá
óðru sinni hafið sig upp úr jörðinni 9 nóttum síðar, eða
a Stephánsmessu 3. ágúst.9) Ef talið er aftur eitt ár og
liórtán dagar, komum við einnig nú að 20. júlí 1030 sem
óánardegi Ólafs helga.
Þessa dagsetningu á Stiklastaðaorustu er hvergi ann-
ars slaðar að finna í gömlum heimildum fremur en sjálfa