Andvari - 01.01.1937, Blaðsíða 47
Andvari
Fiskirannsóknir
43
einu veiðist mergð af síld, þegar farið er að leita henn-
ar á fjölda skipa, úl um allan sjó, líkt og gert var 1935
og gert er við Norðurland á sumrin, í stað þess, sem
hingað til hefir annars átt sér stað, að aðeins sárafá
skip hafa verið að fást við það og sennilega oft farið á
niis við síldina.
Það sem hér verður stuðzt við, eru ýmist eigin-at-
huganir, upplýsingar, sem eg hefi fengið hjá merkum
fiskimönnum (bátaformönnum, togaraskipstjórum) eða
öðrum við síldveiðar riðnum, lítið eitt eftir blaða- eða
(síðustu árin) útvarpsfréttum. Sumt af þessu hefi eg áð-
ur birt í ýmsum skýrslum mínum til landshöfðingja og
stiórnarráðs, en mest af því er tekið úr syrpum, sem
e9 hefi krotað niður í sitt af hverju um fiskigöngur og
aflabrögð hér við land síðan 1895, einkum við SV.-Iand.
Það hefir verið ætlun manna undanfarið, að fullorðna
síldin safnaðist um háveturinn í djúpin fyrir sunnan og
vestan land og hrygndi svo þar á grunnunum nokkurn
Ve9inn samtímis þorskinum (sbr. Fiskana, bls. 404—405).
A þeim tíma verður hennar lítið sem ekkert vart inni í
Faxaflóa og næsta lítið úti fyrir, svo að þess hefir jafn-
Vel verið getið til (Árni Friðriksson), að hún mundi fara
*‘l Noregs, til hrygningar. Hvað sem því annars líður,
ma nefna dæmi þess, að vart hefir orðið við fullorðna
síld (ásamt óþroskaðri) við S-ströndina vestanverða (Vestm.
Reykjanes, lengra austan að hefi eg engar upplýs-
•ngar) um háveturinn (desbr. til vorjafndægra) og skal
nú tilfæra nokkur: 16/3 —02 sáust tvær síldartorfur í
Evrarbakkabugnum af farþegaskipi. — Frá 20/3 til 3/<
~~03 var hafsíld, hvalir og fiskur öðru hvoru um allan sjó
^nilli Vestm. og Reykjaness. — Hafsíld mikil síðara hluta
Vetrar, legið kyr (gotið) segir Þorst. Jónsson læknir í
bréfi 18/4 -03. - Fullt af síld í Vestm. 16/2 -04. í