Andvari - 01.01.1880, Blaðsíða 119
Svia.
113
er að allra dómi einhver hinn bezti steinafrœðingur
allra þeirra, er nú eru uppi. Hann á sæti í efri mál-
stofu á þingi Svía, af því að hann er af gömlum sœnskum
aðli kominn; heíir liann komið þar fram sem mesti
frelsismaður og komið mörgu góðu til leiðar, einkum
með því að styðja allt það, er efla mætti menntun
alþýðu og vísindalegar framfarir. Nordenskiöld er
sannur höfðingi. Hann er kappsmaður hinn mesti,
óþreytandi starfsmaður, fullhugi mikill og fastur eins og
bjarg við það, er hann vill fram koma og til góðs má
verða. Hann er viðfelldinn við undirmenn sína og lipur
og lítillátur í viðmóti við alla.
Á miðöldunum stefndu svo að segja allar landa-
leitir að einu takmarki, nefnilega að finna sem bezta
og skemmsta leið til Indlands, til þess þaðan að geta
sem kostnaðarminnst flutt dýrindis varning til Evrópu.
fær leiðir, er menn fundu að vestan fyrir suðurodda
Afríku og að austan fyrir suðurodda Ameríku, vóru
bæði langar og strangar, og því vildu monn freista að
finna leið fyrir norðan Ameríku og Asíu. Vóru til þess
gjörðar margar ferðir af ötulum ferðamönnum, en þessi
ferðalög heppnuðust eigi sem skyldi. Sá árangur, er
menn vildu af því liafa, varð að engu, en mikið vannst
aptur óbeinlínis fyrir landafrœði og náttúruvísindi.
Norðvesturleiðina, fyrir norðan Ameríku, fann
Mac Clure árið 1850, og hlaut mikla frægð fyrir, en
sú leið varð aldrei að þeim notum, er menn höfðu
upprunalega ætlað1). Norðausturleiðina hefir
Nordenskiöld nú fundið 1879. Margar tilraunir
hafa áður verið gjörðar til þess að komast fyrir norðan
1 Urn norðurferðir í ]>essa stefnu eru til á íslenzku fróðlegar
ritgjörðir eptir Pál Melsteð í íslendingi 1861 — 62 og Bene-
dict Gröndal í Gefn 1871. þær ætti hver sá að lesa, er
frœðast vill um þá hluti.
Andvari. 8