Jörð - 17.06.1941, Blaðsíða 15
1941.
I. A ALÞINGI.
Fundargerðir þaer, er hér birtast eins og þaer verða prentaðar í Alþingistíð-
indum, eru samkvæmt handriti frá skrifstofu Alþingis. Hefir forseti Sameinaðs
þings góðfúslega orðið við tilmælum JARÐAR um að mega birta þær fyrirfram
A29. FUNDI 1 SAMEINUÐU ÞINGI, 17. JÚNl, kl. 1%
miðdegis, fór fram lcosning ríkisstjóra íslands. Er
fnndur hafði verið settur, mælti
forseti (Haraldur Guðmundsson): Samkvæmt dag-
skránni fer nú fram kosning rikisstjóra, samkvæmt ný-
afgreiddum lögum frá þinginu, og gildir kosning hans til
eins árs, frá deginum í dag til jafnlengdar 1942.
Vil ég hiðja þingskrifara að lithýta kjörseðlum meðal
þingmanna, taka síðan við þeim og færa mér, er þingmenn
hafa greitt atkvæði.
Þingskrifarar útbýttu alls 44 kjörseðlum. Tveir þingmenn (Thor
Thors, sem ekki sat þingið, og Páll Hermannsson, sem var veikur)
voru ekki á fundi, en þrír þingmenn (Brynjólfur Bjarnason, Jóhann-
es Jónasson og Jóhann G. Möller) voru ekki komnir á fund, er at-
kvæðagreiðsla hófst, en gengu inn. í salinn i þann mund, er forseti
hóf að telja atkvæði.
Kosningin fór svo, að Sveinn Björnsson, sendilierra, hlaut
37 atkvæði. — Jónas Jónsson, þingmaður Suður-Þingey-
inga, hlaut 1 atkvæði, en 6 kjörseðlar voru auðir.
Forseti: Samkvæmt þessu er Sveinn Björnsson sendi-
herra rétt kjörinn ríkisstjóri íslands frá deginum i dag
til 17. Júní næsta ár.
Háttvirtir alþingismenn! Nú mun forsætisráðherra ganga
á fund hins nýkjörna ríkisstjóra og kveðja hann til að
JÖRÐ 157