Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 26

Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 26
DANSMENNT í GRUNNSKÓLA íslenskum söngdönsum og síðar í tengslum við byrjendanám í erlendum málum. Líkur virðast á að samstarf dansmennta og annarra greina myndi efla gildi beggja/ allra auk þess sem það gæti aukið gleði og áhuga nemenda. Til viðbótar má nefna nokkur dæmi um samstarf einstakra námsgreina og dansmennta. í yngstu aldurshópunum gæti uppgötvun hreyfigetu líkamans verið að hluta sameiginleg undirstaða dansmennta og hreyfináms í íþróttum en öðru máli gegnir um þann þátt hreyfináms sem snertir túlkun og skapandi hugsun. Af því leiðir að hreyfinám verður ætíð óaðskiljanlegur hluti af dansmennt. Tengsl dansmennta við aðrar greinar í bekkjarkennslu hafa verið nefnd og má hugsa sér veruleg tengsl við móðurmál t. d. við nám hlutlægra og huglægra hug- taka, afstöðuhugtaka, tjáningu ljóða, smásagna eða leikrita. Á þessu sviði getur ver- ið um að ræða mjög gefandi samstarf fyrir báðar greinar og örvandi fyrir nemend- ur. Stærðfræði og dansmennt eiga að hluta nokkuð sameiginlegt og má ætla að all- mörg talnahugtök og hugtök stærðfræðinnar megi efla og gera lifandi með tengsl- um við dansmennt. Má t.d. nefna hugtökin hæð, lengd, breidd, dýpt, hring, mynst- ur, svo og hugtökin flatarmál, rúmmál, mengi o.fl. Tengsl dansmennta við samfélagsfræði geta verið margvísleg. Við nám fram- andi hugtaka á þessu sviði, sem börnum reynist erfitt að skilja af orðum einum, gætu hreyfidæmi ef til vill hjálpað, aukið skilning og fest í minni. Þetta þekkja reyndir kennarar. Þjóðdansar geta borið blæ hefða, trúarbragða, sögu og jafnvel landslags sbr. nokkurn mun sem virðist vera á einstaka dönsum frá láglendi og fjalllendi, t.d. í vefaradansi og rælum hér á landi (Sigríður Þ. Valgeirsdóttir og Mín- erva Jónsdóttir 1994). Þá má nefna létta dansa á öðrum danssviðum í tengslum við tiltekið námsefni t.d. í sögu, landafræði og trúfræði, en ekki síður dansa unglinga í samtímaþjóðfélögum. Ætla má að bekkjarkennari sem aflað hefur sér þekkingar á grunnatriðum dansmennta til kennslu í sínum bekk geti auðveldlega aukið skil- virkni kennslu í samfélagsfræðum með tengslum við dansmennt. Annist bekkjarkennari jafnt dansmennt sem aðrar greinar eru tengslin auðveld. Æskilegt virðist að hver skóli efni til samstarfs kennara sem sækja eða hafa sótt námskeið í dansmennt. Einnig þarf að tryggja aðgang að reyndum dansmennta- kennara til trausts og halds við heildarskipulag og skipulag sameiginlegra tíma. Samstarf greina á þann veg sem hér hefur verið nefnt þarf verulegan undirbúning og kunnáttu sem veita má til að byrja með á námskeiðum í dansmennt fyrir áhuga- sama grunnskólakennara. Á námskeiðum fyrir skólastjóra og kennara í einstökum greinum sem hér hafa verið nefndar virðist æskilegt að kynna hugmyndir um sam- starf við dansmennt og leiðir til að afla frekari þekkingar á greininni sé áhugi fyrir hendi. ÁLYKTANIR Mjög aðkallandi er að dansmennt verði sem fyrst valgrein í námi grunnskólakenn- ara hliðstætt tónmennt og myndmennt. Leið til bráðabirgða væri að koma á fót námskeiðum fyrir starfandi kennara yngstu barna og bæta ofan á það stig af stigi, 24
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.