Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Side 52

Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Side 52
SKILAR NÁMS- OG STARFSFRÆÐSLA ÁRANGRI Nemendur voru einnig spurðir að því hvort það sem þeir hefðu lært í vetur um nám hefði hjálpað þeim að gera upp hug sinn um nám eftir framhaldsskóla. Þar kom fram munur í svörum, þarmig að færri nemendur í samanburðarhópi voru sammála, þó að ekki mældist munurinn marktækur. Það var og athyglisverð niður- staða að 20% nemendahópsins sagðist eiga erfitt með að átta sig á bæklingnum Nátn að loknum grunnskóla. UMRÆÐA Þessi rannsókn sýnir að nemendur sem fá náms- og starfsfræðslu eru ákveðnari um námsbraut að vori og þeir hafa aflað sér víðar upplýsinga um nám. Nemendur í náms- og starfsfræðslu hafa betri þekkingu á líklegu framtíðarstarfi að fræðslu lok- inni og þeir hafa aflað sér mun meiri upplýsinga um líklegt framtíðarstarf. Nem- endur sem ekki fá náms- og starfsfræðslu segjast eiga erfiðara með að taka ákvörð- un og framfarir eru greinilegar hjá fræðsluhópnum í skipulagningu hugsunar um störf. Þá voru nemendur þeirrar skoðunar að fræðslan sem þeir fengu um nám, störf og ákvarðanir um veturinn hefði komið að gagni við að gera sér áætlanir um nám og störf í framtíðinni. Því styður þessi rannsókn erlendar rannsóknarniður- stöður sem sýna að náms- og starfsfræðsla ber árangur í fjölmörgum þáttum. Þannig getum við sagt að náms- og starfsfræðslan nái þeim markmiðum sem stefnt er að, þó að ugglaust megi gera betur. Greining á starfshugmyndum leiddi í ljós að í fræðsluhópi lækkaði stig aðgrein- ingar og er það í samræmi við erlendar rannsóknarniðurstöður (Bodden & Klein, 1972, Haase og fleiri, 1979, Cesari og fleiri, 1984, Neimeyer & Ebben, 1985). Skýring á þessu er talin vera sú að upplýsingagjöf um nám styrkir væntingar til starfanna og hugsunin verður einbeittari. Hópurinn sem fékk hugtakamiðaða fræðslu sýnir meiri framfarir en hinir í samtengingum í hugsun um störf. Á þessu stigi má álykta að áherslan í þessari aðferð á hugtakanám geti skýrt þennan mun, en hér er frekari rannsóknar þörf á gögnunum til að túlka þennan mun til hlítar. Þessi rannsókn er sú fyrsta, svo vitað sé, sem notar mælingu á starfshugmyndum til að mæla áhrif náms- og starfsfræðslu hjá svo ungum einstaklingum. Þessar mælingar reynast vera næmar á framfarir í fræðslu og rennir það stoðum undir að nýta þessa aðferð í árangursmati í náms- og starfsfræðslu. í þessari rannsókn kom fram að einkunnir hafa afgerandi áhrif á námsval og er það í samræmi við það sem erlendar rannsóknir sýna. Þá var og athugað hvort fræðsla hefði þau áhrif að nemendur með lágar einkunnir endurskoðuðu fyrirætl- anir sínar í ljósi fræðslu um kröfur í framhaldsnámi. í ljós kom að svo er ekki og er það í samræmi við rannsókn Hanson og Sander frá 1973 (Spokane & Oliver, 1983). Líklegar skýringar gætu verið að framboð á námi hafi verið takmarkað fyrir þennan hóp nemenda eða að upplýsingar um kröfur í framhaldsskólum liggi ekki á lausu. Einnig er vel hugsanlegt að nemendur séu óraunsæir á getu sína. Þá má vera að náms- og starfsfræðslukennurum finnist það viðkvæmt efni að fjalla um framtíðar- möguleika nemenda með lágar einkunnir. Einnig er möguleg skýring að unga fólk- inu sé vel ljóst að menntun er mikilvægt veganesti í framtíðarþjóðfélaginu og því 50
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.