Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Side 121

Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Side 121
GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR að raunverulegri getu barnsins svo að það læri í samræmi við hæfni sína og auki jafnframt við hana (Bruner 1987). Þannig er þetta hermiferli ekki aðeins endurtekn- ing heldur bætir móðirin örlitlum breytingum inn í samspilið, barnið og móðir þess skiptast stöðugt á og barnið verður smátt og smátt virkur þátttakandi í þessu hermiferli. Barnið öðlast á þennan hátt vitneskju um að það geti haft áhrif á móður sína og fær með því ákveðna hugmynd um eftirhermu. Hlutverkin snúast smám saman við, barnið hermir eftir því sem móðirin gerir og eftirherman verður gagn- kvæm. Þegar barnið hefur öðlast þessa vitneskju er það farið að sýna eftirvænting- aratferli sem er afar mikilvægt fyrir frumkvæði þess og virkni (Stern 1985). Litlu hreyfingarnar í andliti mikið fatlaðs barns (brosviprur, grettur, tungu-hreyfingar) eru oftast nær óljósar þannig að foreldrunum reynist erfitt að sjá þær og herma samstundis eftir þeim. Ef börnin hafa auk þess ekki sjón eða nýta hana ekki fara þau einnig á mis við þetta eftirhermuferli, þau sjá ekki andlit foreldranna. Merkin sem blint barn sýnir t.d við athygli foreldranna eru oft öðruvísi. Þegar foreldrar ófatlaðs barns koma að rúmi þess brosir barnið yfirleitt og fagnar þeim um leið og það sér þau. Blint barn situr yfirleitt rólegt og frumkvæðislaust og eru viðbrögð þess oft túlkuð sem áhugaleysi. Blinda barnið er jafn áhugasamt en það þarf að ein- beita sér að því að hlusta eftir röddum og því tekur lengri tíma fyrir það að sýna áhuga og bregðast við (Jacobsen 1992). Eins og fram hefur komið hefur mikið að segja fyrir þá sem umgangast fötluð börn að vera meðvitaðir um virknistig barnsins hverju sinni. Þau merki sem barnið hefur yfir að ráða og hægt er að túlka á hverju þessara stiga eru bros barnsins, grát- ur þess og svipbrigði. Þessi merki gegna mikilvægu hlutverki vegna þess að þau eru túlkuð á svipaðan hátt allt lífið, sbr. grát nýfædda barnsins og grát fullorðinna, bros og svipbrigði (Martinsen 1992). Hreyfingar barnsins og andardráttur þess hafa einnig mikla boðskiptaþýðingu hjá barninu, og augnaráð þess er líka afar mikil- vægt verkfæri í boðskiptum (Rye 1993). Það sem fram hefur komið hér að ofan er notað til viðmiðunar í greiningu á boðskiptum barnanna í þeirri rannsókn sem hér er lýst. AÐFERÐ í rannsókninni voru notaðar eigindlegar rannsóknaraðferðir og beitt var svokallaðri tilviksrannsókn eða „case study". Markmið með tilviksrannsókn er að kafa djúpt og greina rækilega einstaka þætti hvers tilviks (Bogdan og Biklen 1992). Boðskipti mikið fatlaðra barna eru flókin og margþætt. Til þess að geta skilið þau þarf að kafa djúpt og greina þau afar nákvæmlega hjá hverju og einu barni. í rannsókninni var kannað hvernig boðskiptin fóru fram hjá hverju barni og móður þess. í niðurstöð- um rannsóknarinnar var leitað svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum. 1. Hvernigfara boðskipti fram milli mikiðfatlaðra barna og mæðra þeirra? Til þess að svara þessari spurningu var leitað svara við eftirfarandi undirspurning- um hjá hverju barni og móður þess. 119
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.