Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 163
STEFÁN BERGMANN
Margt hefur áhrif á stöðu umhverfismenntar og framkvæmd hennar. Má þar
nefna áhuga og umræðu í samfélaginu á hverjum tíma, frumkvæði og örvun stjórn-
valda, grunnmenntun og símenntun kennara. Umhverfisfræðin og umhverfismálin
breytast með nýrri þekkingu og viðhorfum sem kalla á breyttar áherslur umhverfis-
menntar. Ný hugsun og stefnumörkun í samfélaginu hefur áhrif, t.d. stefnumörkun
stjórnvalda um sjálfbæra þróun auðlinda og samfélags og ýmsar hugmyndir um
hvernig maðurinn getur unnið með náttúrunni.
Af einstökum atburðum í íslensku samfélagi um þessar mundir má nefna eftir-
farandi sem haft geta veruleg áhrif á stöðu umhverfismenntar: Áhugi sveitarfélaga
fyrir gerð Staðardagskrár 21 fyrir sjálfbæra þróun beinir kastljósinu að mikilvægi
og hlutverki umhverfismenntar bæði í skólum og fyrir almenning, en um 30
sveitarfélög vinna að gerð slíkrar áætlunar fyrir sitt samfélag. Ef til vill er þetta
áhrifamesti einstaki samfélagsþátturinn sem hér er að verki og hafa mun veruleg
áhrif á næstu árum. Aðrir þættir eru mikil umræða í samfélaginu um auðlindanýt-
ingu, landnýtingu og virkjanir, ný vinnubrögð við ákvarðanatöku í umhverfismál-
um með umhverfismati og þróun valkosta við auðlindanýtingu; aukin reynsla af
skólaverkefnum í umhverfismennt mun skila sér og ungir kennarar brautskráðir sl.
10 ár hafa fengið meiri innsýn í umhverfismennt en áður var; stofnun Umhverfis-
fræðsluráðs 1997 sem samstarfsvettvangs stjórnvalda, stofnana og samtaka um
umhverfisfræðslu, var mikilvægt skref til styrktar framgangi umhverfismenntar
sbr. gerð umhverfisvefs og tvær ráðstefnur um umhverfismennt 1999 og 2000 sem
ráðið hefur þegar beitt sér fyrir; framhaldsnám við Háskóla íslands í umhverfis-
fræðum fjölgar þeim sem fá góðan undirbúning í umhverfisfræðum og eflir rann-
sóknir; loks mun þróun upplýsingatækni í skólum og nýjar aðalnámskrár opna nýja
möguleika og svigrúm.
Það gerist því margt sem getur haft jákvæð áhrif á útbreiðslu og gæði umhverf-
ismenntar sem skólarnir og aðrir sem að umhverfismennt starfa geta unnið úr.
HVER ER STAÐA UMHVERFISMENNTAR í SKÓLUM?
Þekking á raunverulegri stöðu umhverfismenntar í skólum er takmörkuð. Sérstakar
rannsóknir hafa ekki verið gerðar í seinni tíð til glöggvunar á útbreiðslu hennar og
viðfangsefnum og verður því að tengja saman atburði og brot til að skapa sér mynd
af því hver staðan er.
Þorvaldur Örn Árnason kennari og námstjóri í umhverfismennt um tveggja ára
skeið hefur haldið mörgu til haga um sögu umhverfismenntar í bók sinni Um-
hverfismennt um það sem gert hefur verið á íslandi á sviði umhverfismenntar síð-
asta áratuginn (Þorvaldur Örn Árnason 1998).
Könnun á stöðu umhverfismenntar var gerð árið 1990 með spurningalistum í
leik-, grunn- og framhaldsskólum, sem var liður í undirbúningi undir ráðstefnuna
Miljö91. Þar koma m.a. fram vísbendingar um hver voru algeng viðfangsefni skól-
anna á þeim tíma á sviði umhverfismenntar. Svörun skólanna var hins vegar frekar
lítil. í Ijós kom að fjölbreytni viðfangsefna virtist veruleg í svarendahópnum, en út-
breidd viðfangsefni voru einkum áherslur í landgræðslu, skógrækt, gróðurvernd,
161