Hugur - 01.01.2002, Page 7
Inngangur ritstjóra
í þessu hefti Hugar er tveimur árgöngum slegið saman, 12. og 13 ár-
gangi, en 10.-11. árgangur ritsins kom út í einu hefti fyrir rúmu ári,
haustið 2000. Það er von okkar að hér eftir verði staðið við að gefa ritið
út árlega. Við gerum ráð fyrir að að næsta hefti, 14. árgangur tímarits-
ins, komi út haustið 2002.
Efni þessa heftis er fjölbreytt, eins og vera ber. Sú nýbreytni hefur ver-
ið tekin upp að skipta ritinu í efnisflokka eða deildir. Ætlun okkar rit-
stjóranna er sú að þessi háttur verði hafður á framvegis, minnsta kosti
um sinn.
Þannig mun ritið birta frumsamdar greinar á öllum sviðum heimspeki
eins og verið hefur en til viðbótar munum við leitast við að birta í hverju
hefti að minnsta kosti eitt viðtal við upprennandi heimspeking og helst
jafnframt eitthvert sýnishorn af verkum hans eða hennar. í þessu hefti
er viðtalið við Loga Gunnarsson sem starfar við Humboldt háskólann í
Þýskalandi og hefur nýverið sent frá sér tvær bækur, Making Moral
Sense (Cambridge University Press) og Wittgensteins Leiter (Philo Ver-
lag). Logi flutti fyrirlestur á vegum Reykjavíkurakademíunnar í fyrra og
birtist fyrirlesturinn hér ásamt viðtalinu. Við vonum að með þessu tak-
ist okkur ekki aðeins að veita lesendum nokkra innsýn í verk Loga held-
ur einnig í heimspekileg áhugamál og áform hans.
Islenskir heimspekingar hafa verið duglegir að þýða ný og klassísk
verk heimspekinnar á síðustu áratugum. Við viljum stuðla að því að
halda þessari hefð við og styrkja hana og þessvegna stefnum við að því
að birta í hverju hefti valdar þýðingar á greinum eða bókarköflum heim-
spekinga sem við teljum að eigi erindi við lesendur og vonum að muni
hafa góð áhrif á íslenska heimspekiumræðu. Tvær þýddar greinar birt-
ast í þessu hefti en það eru grein Elísabetar Anscombe „Asetningur" og
grein W.O. Quines „Um merkingu og sannleika“. Ástæðan fyrir því að við
ákváðum að birta greinar þessara heimspekinga er einkum sú að þau
féllu bæði frá árinu. Okkur fannst að með þessum hætti minntist Hug-
ur þessara áhrifamiklu heimspekinga með viðeigandi hætti. í næsta
5