Hugur - 01.01.2002, Page 47

Hugur - 01.01.2002, Page 47
Merking og sannleikur Hugur geta verið til tvö ósamrýmanleg tilgátusöfn H og H‘ þannig að þegar heildarkenningu okkar T er breytt með því að setja H‘ í stað H þannig að til verði ný heildarkenning, T, þá getur verið að T falli að öllum mögulegum athugunum jafn vel og T gerði. Þar með er auðsætt að H og H‘ láta í té sömu reynsluupplýsingarnar, að svo miklu leyti sem yfírleitt er hægt að tengja reynsluupplýsingar við H og H‘. Og samt eru þessi til- gátusöfn ósamrýmanleg. Þessar vangaveltur ættu að gera út um allar hugmyndir um staðhæfingar sem reynslumerkingu setninga. Af hverju er hugmyndin þá svona þrálát? Astæðan er að hluta til sú að setningar, hvort heldur í vísindum eða daglegu lífi, virðast hafa tiltekna reynslumerkingu hver fyrir sig. Þetta er villandi, en það má útskýra þetta. Setjum sem svo að vísindamaður spái fyrir um niðurstöðu í líf- efnafræði útfrá nokkrum vísindalegum hugmyndum en að spáin gangi ekki eftir. Vísindamaðurinn mun þá leita eftir tilgátu innan lífefnafræð- innar sem mætti endurskoða frekar en að eiga við aðrar og almennari tilgátur í rökfræði, stærðfræði eða tilgátur um hreyfingu efnislegra hluta almennt. Og þetta er eðlilega að farið - þetta er reglan um að lág- marka limlestingar. Af þessu leiðir hins vegar að sá hluti kenningarinn- ar sem hin misheppnaða spá skiptir máli fyrir virðist afmarkaðri en annars mætti ætla. Auk þess mun vísindamaðurinn ekki líta sömu augum á allar kenning- ar lífefnafræðinnar þegar kemur að misheppnuðu spánni. Hann mun einbeita sér að einni tilgátu sem var meiri efasemdum bundin en allar hinar. Vísindamenn eru jú alltaf að hanna tilraunir með það fyrir aug- um að prófa einstaka tilgátur; og þetta er raunar ósköp eðlilegt svo fremi að það sé einhver ein tilgáta sem er grunsamlegri en aðrir hlutar kenn- ingarinnar. Það væri hins vegar ekki rétt að líta svo á að vísindamaðurinn prófi eina tilgátu en haldi öllu öðru í fóstum skorðum. Hvatinn að tilrauninni er vissulega grunsemdir um eina tilgátu, og reynist prófið neikvætt er hann staðráðinn í að hafna þeirri tilgátu, en ekki bara henni. Hann mun líka hafna öllum þeim tilgátum sem hann telur að leiði af sér þessa til- gátu. Ég get ekki reitt mig á hugtakið um leiðingu (e. implication) þar sem ég hef dregið réttmæti þess í efa (eða réttmæti jafngildis en það er einungis gagnkvæm leiðing). En við verðum að átta okkur á að á milli setninga eru tengsl sem standa traustum fótum í atferli okkar. Sum þessara tengsla geta verið ílókin eins og áður sagði, og þau geta valdið því að við hneigjumst til að játa eða neita tilteknum setningum þegar við raunar lengra en öll hugsanleg gögn eins og Quine kemst að orði, og því eru þær vansannaðar. Um vansönnun vísindakenninga má lesa í grein Þorsteins Gylfasonar „Sannleikur“ í Er vit í vísindum? (Reykjavík, Háskólaútgáfan 1996). [þýð.] 45
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.