Búnaðarrit - 01.01.1913, Blaðsíða 13
BÚNAÐARMT
9
Einkenni Ef vér gætum að því, sem hér hefir
hlýrra veggja. verið sagt, liggur í augum uppi: 1) að
vév verðum að qera veggina hlýja með
tróði. 2) Veggurinn eða þiljurnar innan tróðsins
niega elclú vera eldfimar. 3) Útveggurinn utan tróðs-
ins verður að vera algerlega vatnshéldur, svo vatn nái
ekki að ganga í tróðið. Annars hverfa að mestu hlý-
indi þess, og hætta verður á að veggurinn springi
í frostum. 4) Tróðinu verður að vera svo komið
fyrir, að auðvelt sé að hœta á eftir því sem það sigur,
án þess að raska neinu í byggingunni. 5) Tróðið verð-
ur að vera þykt, einkum ef tróðefnið er ekki sem hlý-
jast. Hagurinn við að gera tróðlagið þykt, er auðsær,
því hver þumlungur í tróðþyktinni vegur tiltölulega
miklu meira en dýr steinveggurinn, og úr því tróðhol
er gert á annað borð, munar minstu hvort það er nokkru
víðara eða þrengra.
Framtíðar- Öllum þessum skilyrðum má fullnægja
veggirnir. með því, að gera veggina tvöfalda með
ríflega þykku veggjarholi, sem fylt sé
með tróði. Báðir veggir verða þá úr steini, húsið
óeldfimt að utan og innan. Hlýindin geta orðið svo
mikil sem vera skal, eftir því hve tróðholið er vítt. Af því
að tróðholið gengur óslitið upp allan vegginn, má bæta
í það efst uppi undir súðinni, eftir því sem tróðið sígur.
Mörgum erfiðleikum er það að vísu bundið, að fá slíka
veggi vel og tryggilega úr garði gerða, en að því eg get
frekast séð, hljóta veggir vorir að verða framvegis með
þessari gerð í aðalatriðunum, nema því að eins, að ný
byggingaefni ryðji sér til rúms. 1 öllum sveitum, sem
erfitt eiga með éldsneyti, verða veggir íbúðarhúsa tvö-
faldir steinveggir með víðu lioli, fyltu af tróði. Og veggir
þessir eiga að geta orðið hlýrri en beztu baðstofur! ' Eg
er svo sannfærður um að þessi veggjagerð verður ofan á,
að i mínum augum er helzta verkefnið í byggingarmál-