Búnaðarrit - 01.01.1913, Blaðsíða 164
160
BÚNAÐARRIT
Kristín Ólafsdóttir, Kálfholti, Rangárvallasýslu,
Páll Bjarnason, Stokkseyri, Árnessýslu,
Ragnhildur Benediktsdóttir, Mjóafirði, Suður-Múlasýslu,
Sigurður Briem, Reykjavík,
Soffia Ásgeirsdóttir, Knararnesi, Mýrasýslu,
Stefana Björnsdóttir, Ketu, Skagafjarðarsýslu,
Vigfús Sigurðsson, Egilsstöðum, N.-Múlasýslu,
Þóra Stefánsdóttir, Fagraskógi, Eyjafjarðarsýslu,
Þorbjörg R. Pálsdóttir, Gilsárstekk, S. Múlasýslu,
Þuríður Halldórsdóttír, Fljótshólum, Árnessýslu.
Aðsóknin að þessari kenslu hefir aukist ár frá ári.
Sóttu nú 40 um að fá aðgöngu. Til þess að geta tekið
íleiri nemendur en hægt hefir verið undanfarið, var að-
stoðarmaður fenginn við kensluna og tilraunastarfið um
vortímann; var það Páll Jónsson, kennari á Hvanneyri.
Kenslan fór fram með sama fyrirkomulagi og áður, en
munnlega tilsögnin var þó heldur meiri en verið hefir.
P. J. hélt 13 fyrirlestra. Hijóðuðu þeir um lífskjör og
líferni jurtanna, um jarðveginn og veðráttufarið, fram-
ræslu og vatnsveitingar, áburð og þúfnasléttun. Eg hélt
9 fyrirlestra, alla um garðyrkju. Nemendur tóku þátt í
öilum þeim störíum, sem fyrir komu í gróðrarstöðinni,
eins og verið hefir áður. Sumar stúlkurnar plægðu.
Urðu þær fljótt svo leiknar í því, að þær plægðu ein-
samlar. Að öðru leyti var vinnan innifalin í uppstungu
og annari meðferð jarðvegarins um vortímann, sáningu
og gróðursetningu matjurta og blóma. Allmikið var
fengist við gróðursetning trjáa, bæði í gróðrarstöðinni og
annarstaðar í bænum. Á skógræktardaginn fóru allir
nemendur upp að Vífilsstöðum og gróðursettu þar tré.
E. H.