Búnaðarrit - 01.01.1913, Blaðsíða 309
BÚNAÐARRIT
305
2. Viö áætlunina 1914 og 1915 leggjuni vér til aö þessar
brej'tingar sé gerðar:
a. Cjaldliður 6. a. hækki um 200 kr., en gjaldliður 6. b.
lækki um sömu fjárhæð.
Bar sem svo mikil aðsókn hefir verið að garð-
yrkjukenslunni siðustu árin, virðist rétt að lækka
nolckuð námsstyrkinn, svo sem félagsstjórnin heflr
vikið að í athugasemd sinni við þann lið.
b. Á eftir staílið g. í 6. gjaldlið komi:
h. til Búnaðarsambands Kjalarnesþings 300 krónur,
en stafliðatalan þar á eftir breytist eftir þvi, og
samtalan á gjaldlið 6. hækki um 300 kr.
c. Gjaldliður 10. lækki um 300 kr. Iljá stjórn Slátur-
félags Suðurlands höíum vér fengið vitneskju um
það, að hún sé fús til, að færa kenslustyrkinn niður
um þriðjung, niður i 250 kr., ef neinendur sé eigi fleiri
en4, og kenslan stendur ekki lengur en til 15. nóvember.
Vér ætluin, að nú, þegar kensla þessi hefir staðið
nokkur ár, muni 4 nemendur á ári verða nægileg
viðkoma, og bagalítið að kcnslan liætti 15. nóv., því
að úr þvi er slátrun orðin lítil.
3. Nefndinni hefir borist umsókn írá stjórnarnefnd kvenna-
skólans í Reykjavík uin 250 kr. ársstyrk í 2 ár tif hús-
stjórnarkenslu við skólann og skýrsia um kenslu og
nemandaskrá árið sem leið. Leggjum vér til, að
styrkur þessi verði veittur með sama skilyrði og áður,
aö sveitastúlkur liafi lorgangsrétt til að komast að
vetrarnámskeiðunum.
4. í beiðni stjórnarnefndar kvennaskólans á Blönduósi
um ótiltekinn styrk til hússtjórnarkenslu í þeim skóla,
er engin skýrsla um kenslutilhögun. Pá er fullnæg-
jandi skýrsla er fengin, leggjum vér til, að til kenslu
þessarar verði veittur bæði árin (1914 og 1915) styrkur,
miðaður við nemendatölu, þó eigi yfir 250 krónur.
5. Út af álitsskjali frá reikninganefnd skal það tekið fram,
að styrkurinn, sem lofað hefir verið lil íramhalds
Markaríljótsgarðinum, verði, ef til kemur, greiddur at
staflið 6. a., eins og aðrar styrkveítingar, sem lofað
hefir verið til jarðabóta.
20