Búnaðarrit - 01.01.1913, Blaðsíða 68
Ræktunarsjóðurinn 1912.
Lán. Um þau höfðu sótt 69, 62 til jarbabóta og
7 til ábýliskaupa. Engri lánbeiðni var í þetta sinn
synjað sökum fjárskorts. Yoru heimiluð 60 lán til
jarðabóta, alls 47800 krv og 5 lán til ábýliskaupa, alls
2450 kr. Lánin þá samtals 50250 kr. Af jarðabóta-
lánunum voru til girðinga einna 40 lán, alls 37050 kr.,
en til ýmislegra jarðabóta — þar með einnig girðinga —
20 lán, alls 10750 kr. Af lánunum til girðinga gekk
nær tveim þriðjungum, 24600 kr., til 10 samgirðinga,
en rúmur þriðjungur, 12450 kr., til girðioga á einstök-
um jörðum. Stærstu samgirðingalánin voru: til afréttar-
girðingar Flóamanna og Skeiðamanna 7000 kr., afréttar-
girðingar Svínavatnshrepps 4000 kr,, girðingar í Yestur-
Eyjafjallahreppi 3000 kr., girðingar 7 bænda í Hraunhreppi
2400 kr. og girðingar í Kaldrananeshreppi 2000 kr.
StyrJcur til lífsábyrgðarkaupa til viðbótartryggingar
fyrir ábýliskaupaláni var enginn veittur. Enginn hafði
sótt um hann.
Verðlaun. Umsækjendur voru 79, úr þessum sýslum:
A.-Skaftafellss. 2, V.-Skaftafellss. 15, Rangárvallas. 9,
Árness. 8, Gullbringus. 6, Kjósars. 2, Borgarfjarðars. 3,
Mýras. 4, Daias. 9, A.-Barðastrandars. 1, Strandas. 4,
Skagafjarðars. 3, Eyjafjarðars. 6, S.-Þingeyjars. 5, S.-
Múlas. 2. Verðlaun fengu 68, og var til þeirra varið
alls 4500 kr. Af þeim, sem verðlaun fengu nú, höfðu
24 fengið þau áður, einu sinni eða tvisvar. Nöfn þeirra
eru merkt með* eða** í skrá þeirri yfir verðlaunin, sem
hér fer á eftir.