Búnaðarrit - 01.01.1913, Blaðsíða 182
178
BÚNAÐARRIT
inn er kominn yíir 80°, en engin eldhætta sé meðan
vatnsgufa rýkur úr heyinu og það er blautt.
5. Að sé um illkynjaðan hita að ræða í öliu hey-
inu, er gagnslaust, jafnvel tii ills eins, að rifa smágeilar
eða strompa, heldur verður að rífa upp allamiðjuna, sé
um hlöðu að ræða, eða þvergeilar í hey, svo ekki standi
eftir meira en í mesta lagi 2 m. þykkar bríkur.
(i. Geiiar, sem ieystar eru i hey, má ekki byrgja
eða refta yfir, og ekki heldur fylla með þuru heyi, fyr
en kalt er orðið beggja megin.
7. Uppleyst hey, sem hefir hitnað í yfir 50° og
er því orðið dautt, ryður sig á stuttum tíma, og má þá
samstundis hlaða því í hey eða láta það inn í hlöðuna
aftur, sé rúm fyrir það annarsstaðar en í geilunum.
Þess skal vandlega gæta, að þurka bleytuna vel, svo
heyið mygli ekki, og troða það vel saman, svo síður
hitni í því.
8. Eldhætta er mest í uppleystu, þuru heyi, hitni
i þvi á ný. Kemur þá hitinn venjulega úr öðru heyi
óuppleystu. Þó er ekki óhugsandi, að hitnað geti í dauð-
hreinsuðu heyi hálf-brendu (lausu við allar smáverur)
alveg efnafræðislega, eins og áður er getið.
í). Það er áriðandi, að heyið sé hreint, laust við
afrak og önnur óhreinindi, sem hafa lágt kveikimark eða
hitnað getur i.
10. Stærsta búskaparsynd bóndans er að brenna
heyin sin. Þvi þá brennur búið alt. Komi slík óham-
ingja fyrir þig, lesari góður, að um of hitni í heyjum,
leystu þá upp í tíma. Gerðu það með aðgætni og
stiliingu. Búðu þig undir áður en þú byrjar. Hafðu
nóg vatn við hendina. Skerðu fyrir með sterkum, beitt-
um ljá eða heyhníf. Notaðu heykvíslar, en gerðu það
með gætni. Rífðu aldrei upp stórar tuggur í einu.
Rjúki úr heyinu, eða sjái í neista, heltu strax í vatni.
Mældu hitann nákvæmlega. Sé hitinn mikill, undir 100°
eða meira, heyið brunnið, svart eða öskukent, er alvar-